
F.v. Eygló færði þeim Svanborgu Siggeirsdóttur gjaldkera og Mjöll Guðjónsdóttur formanni Krabbameinsfélags Snæfellness peningagjöfina sem var 1.360.000 krónur. Ljósm. af.
Afhenti Krabbameinsfélagi Snæfellsness 1,3 milljón króna
Eygló Kristjánsdóttir frá Stóra Kampi í Snæfellsbæ lauk nýlega 800 kílómetra göngu sinni um Jakobsveginn svokallaða. Gangan byrjaði í Saint Pied de port í Frakklandi, sem liggur við landamæri Spánar. Þaðan gekk hún yfir Pýreneafjöllin til Spánar og endaði í borg sem heitir Santiago de Compostela.