Fréttir

true

Veiðar á langreyðum stöðvaðar

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur tekið ákvörðun um að stöðva tímabundið veiðar á langreyðum fram til 31. ágúst nk. Eftirlitsskýrsla Matvælastofnunar um velferð hvala við veiðar á langreyðum barst ráðuneytinu í maí 2023 en niðurstaða skýrslunnar er að aflífun dýranna hafi tekið of langan tíma út frá meginmarkmiðum laga um velferð dýra. Matvælastofnun fól í kjölfarið fagráði…Lesa meira

true

Skallagrímur úr leik eftir framlengingu og vító á móti KFA

Skallagrímur sem er í neðri hlutanum í 4. deild og KFA sem er í toppbaráttu í 2. deild mættust í fyrstu umferð í bikarkeppni neðri deilda í knattspyrnu, Fótbolti.net.bikarnum í gærkvöldi og var leikurinn á Skallagrímsvelli. Gestirnir komust yfir á 21. mínútu með marki frá Heiðari Snæ Ragnarssyni en Alejandro Serralvo jafnaði fyrir Skallagrím með…Lesa meira

true

Gunnhildur Lind er Listamanneskja Borgarbyggðar

Ljósmyndarinn Gunnhildur Lind Hansdóttir tók við titlinum Listamanneskja Borgarbyggðar á hátíðarhöldum í Skallagrímsgarði laugardaginn síðasta, þjóðhátíðardaginn 17. júní. Var það sveitarstjórinn Stefán Broddi Guðjónsson sem veitti Gunnhildi viðurkenninguna. Blaðamaður Skessuhorns sló á þráðinn til Gunnhildar sem sagðist mjög hissa yfir nafnbótinni. ,,Hér í kring er svo rosalega mikið af frambærilegu listafólki, þegar ég hugsa um…Lesa meira

true

Nýsköpunarsetur er liður í að fjölga atvinnutækifærum

Nýsköpunar- og frumkvöðlasetri Dalabyggðar var komið á laggirnar í mars 2022. Megin tilgangur opnunar setursins var að opna aðstöðu í Dalabyggð fyrir fólk sem vinnur að nýsköpunarverkefnum og til að fjölga atvinnutækifærum á svæðinu, þar sem í setrinu er samvinnurými sem tilvalið er fyrir störf án staðsetningar. Nýsköpunarsetrið er staðsett í stjórnsýsluhúsinu við Miðbraut 11…Lesa meira

true

Flottur fyrsti dagur í Hítará á Mýrum

,,Þetta var frábær opnunardagur í Hítará á Mýrum og allir fengu fisk. Það hefur talsvert gengið af fiski í ána,“ sagði Haraldur Eiríksson um opnun árinnar sem gaf flotta veiði, en alls veiddust tíu laxar á opnunardaginn. Ekki veiddist þó á allar stangirnar. Grímsá gaf þrjá laxa fyrsta daginn sem veiða mátti í ánni og…Lesa meira

true

Ýmir og Kári gerðu jafntefli í Kórnum

Á föstudagskvöldið áttust við lið Ýmis og Kára í 3. deild karla í knattspyrnu og var leikurinn innan dyra í knattspyrnuhöllinni Kórnum í Kópavogi. Káramenn byrjuðu betur í leiknum fyrsta hálftímann, voru mun meira með boltann og fengu nokkur góð færi sem þeir náðu ekki að nýta. Eftir skyndisókn kom Hákon Freyr Jónsson heimamönnum í…Lesa meira

true

Sæmd riddarakrossi fyrir frumkvöðlastarf í landbúnaði

Jóhanna Bergmann Þorvaldsdóttir bóndi var sæmd riddarakrossi, heiðursmerki íslensku fálkaorðunnar, fyrir frumkvöðlastarf í landbúnaði síðastliðinn laugardag, 17. júní. Jóhanna og Þorbjörn Oddsson hafa ræktað geitur að Háafelli síðan 1989 en ákváðu um síðustu aldamót að vinna markvisst að því að kynna íslenska geitastofninn og hans afurðir. Fyrir ellefu árum síðan stofnuðu þau Geitfjársetur að Háafelli…Lesa meira

true

Strandveiðin gengið vel á Snæfellsnesi

Strandveiðin í sumar hefur gengið vel á Snæfellsnesi og aflabrögð með eindæmum góð. Telja menn að strandveiðunum ljúki um næstu mánaðamót verði veiði svipuð næstu daga og ekki verði bætt við í strandveiðipottinn. En stjórnvöld hafa verið hljóð um að bætt verði í pottinn þótt gríðarlegt magn af þorski sé syndandi upp í fjörur og…Lesa meira

true

Kristín sló Íslandsmet og hreppti brons og silfur á HM

Heimsmeistaramótið í klassískum lyftingum fór fram í St. Julians á Möltu síðastliðna helgi. Á mótinu kepptu þrír keppendur frá Íslandi en tveir þeirra eru Vestlendingar. Borgfirðingurinn Kristín Þórhallsdóttir hlaut silfurverðlaun á mótinu fyrir samanlagðan árangur í -84 kg flokki. Hún lyfti 210 kg í hnébeygju og hlaut brons í þeirri grein en einnig hreppti hún…Lesa meira

true

Mygla greinist í Háskólanum á Bifröst

Mygla hefur greinst í aðalbyggingu háskólans á Bifröst. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef skólans. Færa þurfti útskriftarhátíð háskólans um set vegna myglunnar og var hún haldin í Hjálmakletti í Borgarnesi um liðna helgi. „Þótti því rétt [vegna myglunnar] að færa háskólahátíðina í annað húsnæði, svo að fyllstu öryggissjónarmiða sé gætt. Sumarið verður svo nýtt…Lesa meira