
Linda Guðmundsdóttir verkefnastjóri DalaAuðs sýndi blaðamanni Nýsköpunarsetrið. Ljósm. gbþ.
Nýsköpunarsetur er liður í að fjölga atvinnutækifærum
Nýsköpunar- og frumkvöðlasetri Dalabyggðar var komið á laggirnar í mars 2022. Megin tilgangur opnunar setursins var að opna aðstöðu í Dalabyggð fyrir fólk sem vinnur að nýsköpunarverkefnum og til að fjölga atvinnutækifærum á svæðinu, þar sem í setrinu er samvinnurými sem tilvalið er fyrir störf án staðsetningar.