Fréttir

true

Ótrúleg úrkoma í Grundarfirði á hálfum öðrum sólarhring

„Það byrjaði að rigna síðdegis í fyrradag og stytti upp nú um kl. 9 í morgun. Stórrigning nánast allan tímann,“ skrifar Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur um úrhellisrigningu sem mældist í Grundarfirði. „Mælirinn í Grundarfirði reiknar samanlagða úrkomu 245 mm þennan rúma eina og hálfa sólarhring. Ótrúlegt úrkomumagn og gildið fyrir síðasta sólarhring er 159 mm. Hlýtur…Lesa meira

true

Tveir rafmagnsknúnir strætisvagnar komnir á Akranes

Það voru mikil tímamót í byrjun vikunnar hjá Hópferðabílum Reynis Jóhannssonar ehf. á Akranesi þegar teknir voru í notkun tveir rafmagnsknúnir strætisvagnar. Hópferðabílar Reynis Jóhannssonar ehf. fengu vagnana afhenta um síðustu helgi en fyrirtækið er með samning um strætisvagnaþjónustu á Akranesi allt fram til ársins 2029. Sigurður Reynisson hjá Hópferðabílum Reynis segir að vagnarnir séu…Lesa meira

true

Nær óbreytt aflamark lagt til í þorski en aukning ýsukvótans

Hafrannsóknastofnun hefur kynnt úttekt á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár. Aflamark fyrir á þriðja tug stofna fisks er lagt til á grundvelli langtímamarkmiða um sjálfbæra nýtingu. Lagt er til 1% hækkun aflamarks þorsks fiskveiðiárið 2023/2024 og byggt á aflareglu stjórnvalda. Því hækkar ráðlagður heildarafli úr 208.846 tonnum á yfirstandandi fiskveiðiári í 211.309 tonn.…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði á móti Vængjum Júpíters

Vængir Júpíters og Skallagrímur mættust í 4. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn á rennblautum gervigrasvelli Fjölnis við Egilshöll. Heimamenn komust yfir í leiknum strax á 5. mínútu með marki Sigurðar Agnars Arnþórssonar og voru með yfirhöndina nánast allan fyrri hálfleikinn. Skallagrímsmenn voru heppnir að vera ekki tveimur til þremur mörkum undir…Lesa meira

true

Loftlaus ærslabelgur eitthvað áfram

Enn sem komið er hefur ekki verið hægt að blása lofti í ærslabelginn í Stykkishólmi. Það orsakast af því hve blautur jarðvegurinn er við staðsetningu belgsins en jarðvegurinn heldur belgnum niðri og má því ekki vera of blautur svo gott hald fáist af honum. Nú er fyrirhugað að vinna bætur á þessu með því að…Lesa meira

true

Fótbrotnaði við Rauðfeldsgjá

Seinni part síðasta laugardags var erlendur ferðamaður, kona á áttræðisaldri, með göngustafi með í för, að ganga niður Rauðfeldsgjá þegar hún datt og fótbrotnaði. Göngustígurinn sem liggur að bifreiðastæðinu er mjög brattur á kafla og hættulegur og er mikið um lausamöl á honum. Björgunarsveitarmenn frá Lífsbjörgu í Snæfellsbæ komu á vettvang og aðstoðuðu við að…Lesa meira

true

Byrjunin lofar góðu í Þverá

Laxveiðin fer bara vel af stað víða; laxinn er genginn í árnar og farinn að taka í vatnsmiklum ánum þessa dagana. ,,Það veiddust sjö laxar fyrir hádegi, allt frá svæði 1 til 7, það er mikið vatn, fiskur um alla á og mikil gleði. Þetta er bara flott byrjun,“ sagði Egill Ástráðsson staðarhaldari við Þverá…Lesa meira

true

Féllu í Botnsá

Hringt var í Neyðarlínuna um eittleytið eftir hádegi síðasta sunnudag og tilkynnt um að tveir aðilar hefðu fallið í Botnsá við Glym í Hvalfirði. Maður sá úr fjarlægð þegar þeir duttu í ána og kom fólk til aðstoðar og náði þeim upp. Höfðu þeir reynt að komast yfir ána en misst fótfestu og flutu þeir…Lesa meira

true

Jónas gerir göngu- og reiðhjólastíga

Á fundi mannvirkja- og framkvæmdanefndar Hvalfjarðarsveitar á þriðjudaginn voru opnuð tilboð í göngu- og reiðhjólastíga í Melahverfi. Tilboð í verkið bárust frá eftirtöldum verktökum: Frá Hróarstindi ehf. upp á rúmar 45 milljónir, Fagurverk ehf. upp á tæpar 26 milljónir, Emkan ehf. upp á rúmar 22 milljónir, Þrótti ehf. sem var tæpar 15 milljónir og frá…Lesa meira

true

Ákveðnar trjátegundir illa farnar eftir vorið

Á vestanverðu landinu ber töluvert á trjáskemmdum, einkum á lauftrjám sem byrjuð voru að laufgast í vor en fóru illa í kaldri og óvenjulega þrálátri suðvestanátt sem jafnvel fylgdi selta að auki. Tré voru komin nokkuð af stað í apríl og farin að laufgast en nú eru laufin svört á að líta, veðurbarin og lífvana.…Lesa meira