Nýi rafmagnsknúni strætisvagninn. Ljósm. vaks

Tveir rafmagnsknúnir strætisvagnar komnir á Akranes

Það voru mikil tímamót í byrjun vikunnar hjá Hópferðabílum Reynis Jóhannssonar ehf. á Akranesi þegar teknir voru í notkun tveir rafmagnsknúnir strætisvagnar. Hópferðabílar Reynis Jóhannssonar ehf. fengu vagnana afhenta um síðustu helgi en fyrirtækið er með samning um strætisvagnaþjónustu á Akranesi allt fram til ársins 2029.

Tveir rafmagnsknúnir strætisvagnar komnir á Akranes - Skessuhorn