Áætlað er að viðmiðunarstofn ýsu muni stækka næstu tvö árin vegna góðrar nýliðunar áranna 2019 til 2021. Ljósm. úr safni.

Nær óbreytt aflamark lagt til í þorski en aukning ýsukvótans

Hafrannsóknastofnun hefur kynnt úttekt á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár. Aflamark fyrir á þriðja tug stofna fisks er lagt til á grundvelli langtímamarkmiða um sjálfbæra nýtingu. Lagt er til 1% hækkun aflamarks þorsks fiskveiðiárið 2023/2024 og byggt á aflareglu stjórnvalda. Því hækkar ráðlagður heildarafli úr 208.846 tonnum á yfirstandandi fiskveiðiári í 211.309 tonn. Gert er ráð fyrir að viðmiðunarstofn þorsks fari hægt vaxandi næstu tvö til þrjú ár þegar árgangarnir frá 2019 og 2020 koma að fullu inn í viðmiðunarstofninn þar sem þeir eru nú metnir yfir meðallagi.

Nær óbreytt aflamark lagt til í þorski en aukning ýsukvótans - Skessuhorn