Fréttir

true

Búkolla opnar á ný um miðjan júní

Fram kemur á FB síðu Búkollu nytjamarkaðar á Akranesi að komin sé dagsetning á opnun Búkollu á nýja staðnum á Smiðjuvöllum 9 og verður opnað fimmtudaginn 15. júní. Þar er nú til húsa hluti af starfsemi Fjöliðjunnar og dósamóttaka. Lokað verður frá mánudeginum 3. júlí vegna sumarfrís starfsmanna og verður Búkolla síðan opnuð aftur þriðjudaginn…Lesa meira

true

Leggja til að bjóða byggingu íþróttahúss út að nýju

Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar 10. maí síðastliðinn var sveitarstjóra, formanni mannvirkja- og framkvæmdanefndar, verkefnastjóra framkvæmda og eigna ásamt ráðgjafa frá ASK arkitektum falið að ganga til viðræðna við GG verk ehf., um byggingu nýs fyrirhugaðs íþróttahúss við Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit. GG verk ehf. var eini bjóðandinn í verkið og uppfyllti hæfiskröfu útboðsskilmála. Í framhaldinu áttu…Lesa meira

true

Staðfesting varðandi líkfund

Lögreglan á Vesturlandi hefur staðfest að maðurinn sem fannst látinn í fjörunni við Straumeyri í Borgarfirði, handan við Borgarnes, 13. apríl síðastliðinn hafi verið Modestas Antanavicius. Modestas hafði verið saknað síðan í byrjun árs en umfangsmikil leit hófst í kjölfarið. Ekki er talið að lát Modestas hafi borið að með saknæmum hætti. Lögreglan á Vesturlandi…Lesa meira

true

Tilboði Dry-tækni tekið í götulýsingu

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar 5. júní síðastliðinn voru opnuð tilboð í götulýsingu og endurnýjun lampa í ljósastaurum á Akranesi en til stendur að skipta út lömpum, þ.e. ledvæða götulýsinguna. Alls bárust tilboð frá sex aðilum og voru þau eftirfarandi: Hæsta tilboðið átti Rafall ehf. sem hljóðaði upp á tæpar 79 milljónir, Eyfaraf var…Lesa meira

true

Kári vann Hvíta riddarann í hörkuleik

Kári tók á móti liði Hvíta riddarans úr Mosfellsbæ í 3. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og var viðureignin vel varin fyrir rokinu og rigningunni í Akraneshöllinni. Í fyrri hálfleik voru gestirnir skeinuhættari og líklegri til að ná forystu. Bæði lið fengu nokkur hálffæri en báðum liðum gekk illa að ná góðu spili og…Lesa meira

true

Undri býður upp á pottþétt sumarnámskeið

Íþróttafélagið Undri í Dalabyggð stendur fyrir fjögurra vikna sumarnámskeiði í júní fyrir börn í 1.-6. bekk Skólaslit í Auðarskóla í Búðardal voru föstudaginn 2. júní og strax mánudaginn eftir hófst sumarnámskeiðið sem 19 börn eru skráð á. Um er að ræða stóraukna þjónustu við barnafjölskyldur en margir vinnandi foreldrar hafa styttra sumarfrí en börn sín…Lesa meira

true

Hryssan Kolutá missti – og fékk

Síðastliðinn mánudagsmorgun kastaði hryssan Kólutá á hrossaræktarbúi Ollu í Nýja-Bæ í Borgarfirði dauðu bleikálóttu merfolaldi. Á FB síðu búsins segir að síðar sama dag hafi eigendurnir séð að bleikálótt merfolald hafi misst móður sína á sama tíma í Húnavatnssýslu. „Var ákveðið að para þær saman sem gekk eins og í sögu. Kólutá tók folaldinu strax…Lesa meira

true

Víkingur Ó. með góðan sigur á Haukum

Víkingur Ólafsvík og Haukar áttust við í 2. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn á Ólafsvíkurvelli. Markalaust var eftir fyrri hálfleikinn en Abdelhadi Khalok kom heimamönnum yfir eftir átta mínútur í seinni hálfleik. Luis Romero Jorge tvöfaldaði forystu Víkings á 66. mínútu og fleiri urðu mörkin ekki í leiknum. Öruggur 2-0 sigur…Lesa meira

true

Fráveita í lagi er lýðheilsumál

Í mars árið 2007 birtist frétt um fráveitumál á vef Borgarbyggðar. Þar var greint frá því að miklar úrbætur yrðu gerðar í fráveitumálum Borgarness næstu árin. Í lok framkvæmda árið 2009 myndi dagleg losun um stuttar útrásir í fjöru heyra sögunni til; hreinsistöð í Brákarey yrði tekin í notkun og mikil uppbygging yrði á ræsum…Lesa meira