
Fráveita í lagi er lýðheilsumál
Í mars árið 2007 birtist frétt um fráveitumál á vef Borgarbyggðar. Þar var greint frá því að miklar úrbætur yrðu gerðar í fráveitumálum Borgarness næstu árin. Í lok framkvæmda árið 2009 myndi dagleg losun um stuttar útrásir í fjöru heyra sögunni til; hreinsistöð í Brákarey yrði tekin í notkun og mikil uppbygging yrði á ræsum og dælustöðvum. Hér væri um að ræða gjörbyltingu í umhverfismálum bæjarins. Vissulega var það staðreynd. En rúmum áratug síðar er það einnig staðreynd að kröfur í fráveitumálum, hugmyndafræði og aðferðir hafa breyst. Slíkt kallar á nýtt hugarfar, bæði hjá stjórnmálamönnum og almenningi. Blaðamaður Skessuhorns settist niður með Þorsteini Narfasyni framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Vesturlands til að forvitnast um málið.