
Undri býður upp á pottþétt sumarnámskeið
Íþróttafélagið Undri í Dalabyggð stendur fyrir fjögurra vikna sumarnámskeiði í júní fyrir börn í 1.-6. bekk
Skólaslit í Auðarskóla í Búðardal voru föstudaginn 2. júní og strax mánudaginn eftir hófst sumarnámskeiðið sem 19 börn eru skráð á. Um er að ræða stóraukna þjónustu við barnafjölskyldur en margir vinnandi foreldrar hafa styttra sumarfrí en börn sín og þurfa því á e.k. vistun fyrir þau að halda. Óhætt er að segja að með þessu námskeiði sé hugsað fyrir öllu.
Námskeiðið er á virkum dögum milli kl. 9 og 15 út júnímánuð og eru það Jóhanna Vigdís Pálmadóttir og Kristín Frímannsdóttir sem stýra daglegu starfi. Hefur hópurinn aðsetur í Félagsheimilinu Dalabúð og fær þar heitan mat í hádeginu.
Það fyrirkomulag er á að Undri stendur fyrir akstri frístundabíls úr dreifbýlinu og á námskeiðið. Börn sem eiga heima í sveitunum í kringum Búðardal eru því sótt á morgnanna og keyrð heim í lok dags, líkt og þegar þau sækja skólann með skólabíl. Er það mikil þjónustuaukning við fjölskyldur sem búa í sveitunum þar sem foreldrar sleppa við að ráðstafa tíma sínum í ferðir til og frá námskeiðinu. Tíu börn búsett í Búðardal eru skráð á námskeiðið og níu börn úr dreifbýlinu sem deilast niður á þrjá frístundabíla.
Þá eru íþróttaæfingar á vegum Undra tvo daga í viku á námskeiðstímanum og börnum því kleift að æfa sínar íþróttir án þess að vinnudagur þeirra lengist. Þau börn sem ekki eru á námskeiðinu en sækja æfingar geta einnig nýtt sér akstur frístundabíls heim eftir æfingu.
Jóhanna Vigdís smellti þessum myndum af krökkunum sem þann daginn voru í smíðasmiðju og leikjum en meðal þess sem var á dagskrá á námskeiðinu fyrstu vikuna var skátafjör, vettvangsferð, listasmiðja, leikir, smíðasmiðja og sund.


