
Leiðin upp að Glym. Ljósm. Wikipedia.
Féllu í Botnsá
Hringt var í Neyðarlínuna um eittleytið eftir hádegi síðasta sunnudag og tilkynnt um að tveir aðilar hefðu fallið í Botnsá við Glym í Hvalfirði. Maður sá úr fjarlægð þegar þeir duttu í ána og kom fólk til aðstoðar og náði þeim upp. Höfðu þeir reynt að komast yfir ána en misst fótfestu og flutu þeir niður um hundrað metra eftir árfarveginum. Venjulega er trjábolur yfir ána en hann hafði ekki verið settur þar vegna mikils vatnsmagns í ánni. Hlúð var að fólkinu og komu síðan landeigendur sem fluttu þau á jeppa á bifreiðastæðið þar sem sjúkraflutningamenn tóku á móti þeim. Þau voru ekki slösuð en köld og hrakin. Fólkið vildi ekki fara með sjúkrabifreið til nánari skoðunar, harðneituðu því og fóru af vettvangi á eigin ökutæki.