Björgunarsveitarmenn í Borgarfirði. Ljósm. úr safni Skessuhorns.

Fótbrotnaði við Rauðfeldsgjá

Seinni part síðasta laugardags var erlendur ferðamaður, kona á áttræðisaldri, með göngustafi með í för, að ganga niður Rauðfeldsgjá þegar hún datt og fótbrotnaði. Göngustígurinn sem liggur að bifreiðastæðinu er mjög brattur á kafla og hættulegur og er mikið um lausamöl á honum. Björgunarsveitarmenn frá Lífsbjörgu í Snæfellsbæ komu á vettvang og aðstoðuðu við að koma konunni á bifreiðastæðið en hún var um 300 metrum frá því þegar hún féll. Læknir taldi best að kalla til þyrlu og var hlúð að konunni í sjúkrabifreið þar til þyrlan kom á vettvang tveimur tímum eftir slysið. Var hún flutt á Landspítalann í Fossvogi en Útnesvegi var lokað á meðan þyrlan athafnaði sig

Fótbrotnaði við Rauðfeldsgjá - Skessuhorn