Fréttir

true

Ráðherra heldur opinn fund í Borgarnesi um málefni fatlaðs fólks

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, býður til opinna samráðsfunda um landið. Á fundunum verður fjallað um helstu áherslur í þjónustu við fatlað fólk í nútíð og framtíð og hvernig staðið verður að innleiðingu þeirra. Samráðsfundirnir hafa þann tilgang að tryggja milliliðalaust samtal um það sem fólki er efst í huga þegar málefni fatlaðs fólks…Lesa meira

true

Húsnæðiskreppa vegna ábyrgðarflótta stjórnmálamanna

„Stjórnvöld bera ábyrgð á því ófremdarástandi sem nú ríkir í húsnæðismálum sem fyrst og fremst má rekja til skorts á heildarsýn í málaflokknum og ábyrgðarflótta ríkis og veitarfélaga.“ Þetta er á meðal þess sem fram kemur í umsögn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna tímabundinna undanþága frá skipulags-…Lesa meira

true

Gott gengi lyftingafólks í Kraftlyftingafélagi Akraness

Lyftingafólk úr Kraftlyftingafélagi Akraness hefur á nýliðnum mótum krækt sér í nokkra Íslandsmeistaratitla. Frá því er greint á FB síðu félagsins að í apríl tók Halla Rún Friðriksdóttir þátt í Íslandsmeistaramótinu í klassískri bekkpressu og sigraði þar í -84 kg flokki kvenna í Master 2 og setti einnig tvö Íslandsmet í flokknum. Hennar lyftur voru…Lesa meira

true

Blóðsöfnunarferð á Snæfellsnes hefur verið frestað

„Því miður verðum við að fella niður blóðsöfnunarferðina sem fyrirhuguð var á Snæfellsnes þessa viku vegna slæmrar veðurspár,“ segir í tilkynningu frá Blóðbanka Íslands. „Við stefnun á að fara 6.-7. júní næst. Vonumst til að fá gott veður þá.“Lesa meira

true

Suðvestan hvellur í veðrinu á morgun

Veðurspá fyrir morgundaginn er hreint ekki falleg. Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir mestallt landið, einna helst að Austurland sleppi. Spáð er suðvestan 15-23 m/s með hagl- eða slydduéljum og snörpum vindhviðum við fjöll. Við þessar aðstæður er varasamt ferðaveður og er fólk hvatt til að sýna aðgát og ganga frá lausum munum til…Lesa meira

true

Ný hafnarvog við Grundarfjarðarhöfn

Um miðja síðustu viku var síðasta vigtun á gömlu hafnarvoginni í Grundarfirði. Vogin hafði verið í notkun í 21 ár og vigtað 392 þúsund tonn í gegnum tíðina. Það með er ekki talið annarskonar farmur eins og frosin rækja og salt en ófá tonnin hafa einnig verið vigtuð á voginni. Gamla vigtin var tekin upp…Lesa meira

true

Víkingur vann góðan sigur á Völsungi

Víkingur Ólafsvík tók á móti liði Völsungs í 2. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á gervigrasvellinum í Ólafsvík. Heimamenn komust yfir á 22. mínútu með marki frá Anel Crnac en Skagamaðurinn Sigurður Hrannar Þorsteinsson jafnaði metin fyrir gestina undir lok fyrri hálfleiks og staðan 1-1. Fyrirliðinn Arnór Siggeirsson kom Víkingi aftur…Lesa meira

true

Stykkishólmur hentar vel til kennslu í umhverfis- og auðlindafræði

Frá því er greint á FB síðu Háskólaseturs Snæfellsness að dagana 16.-20. maí fór fram námskeið í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands sem kennt var í vettvangsnámskeiði í Stykkishólmi og á Breiðafirði. Meðal fyrirlesara voru starfsmenn Rannsóknaseturs HÍ, Náttúrustofu Vesturlands og Minjavarðar Vesturlands. „Farið var í vel heppnaðar vettvangs heimsóknir með Sæferðum og heimsóknir…Lesa meira

true

Nóg að gera hjá Slökkviliði Grundarfjarðar

Síðasta vika var viðburðarrík hjá Slökkviliði Grundarfjarðar. Þriðjudaginn 16. maí var liðið kallað út vegna strandveiðibáts sem var að taka vatn inná sig og mættu slökkviliðsmenn með dælubúnað til að dæla upp úr bátnum. Á miðvikudeginum var svo fyrirlestur um gróðurelda í Sögumiðstöðinni þar sem Þorlákur Snær Helgason var með kynningu. Á fimmtudeginum var krefjandi…Lesa meira