
Slökkviliðið dælir upp úr strandveiðibátnum Barðstrendingi BA-33 sem lá við festar í Grundarfjarðarhöfn. Ljósm. tfk
Nóg að gera hjá Slökkviliði Grundarfjarðar
Síðasta vika var viðburðarrík hjá Slökkviliði Grundarfjarðar. Þriðjudaginn 16. maí var liðið kallað út vegna strandveiðibáts sem var að taka vatn inná sig og mættu slökkviliðsmenn með dælubúnað til að dæla upp úr bátnum. Á miðvikudeginum var svo fyrirlestur um gróðurelda í Sögumiðstöðinni þar sem Þorlákur Snær Helgason var með kynningu. Á fimmtudeginum var krefjandi æfingadagur þar sem Þorlákur stýrði æfingum frá morgni fram á seinnipart uppstigningardags. Æfingarnar voru góðar og vel upp settar hjá Láka og ljóst að grundfirskir slökkviliðsmenn höfðu fyllt á reynslubankann.