Hópurinn staddur í Flatey. Ljósmyndir: Háskólasetur Snæfellsness.

Stykkishólmur hentar vel til kennslu í umhverfis- og auðlindafræði

Frá því er greint á FB síðu Háskólaseturs Snæfellsness að dagana 16.-20. maí fór fram námskeið í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands sem kennt var í vettvangsnámskeiði í Stykkishólmi og á Breiðafirði. Meðal fyrirlesara voru starfsmenn Rannsóknaseturs HÍ, Náttúrustofu Vesturlands og Minjavarðar Vesturlands. „Farið var í vel heppnaðar vettvangs heimsóknir með Sæferðum og heimsóknir í Æðarsetur Íslands og til Asco Harvester, þar sem hópurinn fékk fræðslu um æðardúnstekju og þörungavinnslu. Námskeiðið var í umsjón Jóns Geirs Péturssonar prófessors og Jukka Siltanen doktorsnema. Stefnt er að því að námskeiðið verði kennt ár hvert, en Stykkishólmur hentar gríðarlega vel sökum samspils atvinnulífs, hlunninda og rannsókna á staðnum,“ segir í frétt Háskólseturs Snæfellsness.

Stykkishólmur hentar vel til kennslu í umhverfis- og auðlindafræði - Skessuhorn