Þannig lítur vindhraðakort Veðurstofunnar út klukkan 19 þriðjudagskvöldið 23. maí.

Suðvestan hvellur í veðrinu á morgun

Veðurspá fyrir morgundaginn er hreint ekki falleg. Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir mestallt landið, einna helst að Austurland sleppi. Spáð er suðvestan 15-23 m/s með hagl- eða slydduéljum og snörpum vindhviðum við fjöll. Við þessar aðstæður er varasamt ferðaveður og er fólk hvatt til að sýna aðgát og ganga frá lausum munum til að forðast tjón. Viðvörun fyrir Faxaflóasvæðið og Breiðafjörð tekur gildi klukkan 11 í fyrramálið og stendur til miðvikudagsmorguns.

Suðvestan hvellur í veðrinu á morgun - Skessuhorn