Fréttir

true

Söngvakeppnin verður í Svíþjóð fimmtíu árum eftir ABBA sigurinn

Það varð ljóst í kvöld að Svíþjóð bar sigur úr býtum í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Hin sænska Loreen stóð uppi sem sigurvegari og var þetta í annað skipti sem hún sigrar í keppninni, gerði það einnig árið 2012. Á næsta ári verða rétt fimmtíu ár frá því ABBA sigraði í keppninni með lag sitt Waterloo…Lesa meira

true

Gleðin við völd þegar Runni hélt upp á afmælið sitt – myndir

Runólfur Guðmundsson útgerðarmaður og stjórnarformaður í Guðmundi Runólfssyni hf í Grundarfirði, lífskúnstner og gleðigjafi, fagnaði í gær 75 ára afmæli sínu. Eins og hans var von og vísa var það gert með myndarbrag. Eftir hádegið var opið hús í fiskvinnslunni og á netaverkstæðinu en um kvöldið var slegið upp afmælisveislu í Samkomuhúsinu, með miklum söng…Lesa meira

true

Byrja að sekta fyrir nagladekkin

Í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi í gær kemur fram að nú eiga allir sem ætla að vera á ferðinni á ökutækjum að vera komnir á hjólbarða án nagla. „Við munum byrja að sekta þá sem enn aka um götur á nagladekkjum og því betra að huga strax að dekkjaskiptum. 15. apríl var síðasti dagurinn…Lesa meira

true

Formleg opnun Smiðjunnar í Ólafsvík – MYNDASYRPA

Formleg opnun og sýning nýs húsnæðis Smiðjunnar, hæfingar- og vinnustaðar fólks með skerta starfsgetu var haldin seinni partinn í gær en nýja húsnæðið er á Ólafsbraut 55 í Ólafsvík þar sem verslun Olís var áður til húsa. Smiðjan er dagþjónusta fyrir fólk með skerta starfsgetu og heyrir undir Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga.  Í Smiðjunni starfa…Lesa meira

true

Reglur um sölu á lömbum með verndandi arfgerðir

Matvælastofnun hefur birt reglur um sölu og flutning á líflömbum með arfgerðina ARR og mögulega verndandi arfgerð T137 fyrir árið 2023. “Flutningur sauðfjár yfir varnarlínur er bannaður samkvæmt lögum um dýrasjúkdóma nr. 25/1993. Matvælastofnun er þó heimilt að veita undanþágu frá þeirri reglu fyrir kynbótagripi. Í ljósi þess að tekin hefur verið ákvörðun um að beita…Lesa meira

true

Norrænt samstarf um heilabilun

Þekkt forvarna- og rannsóknaverkefni um heilabilun sem kallast FINGER verður kynnt á opnum fundi í fundarsal Íslenskrar erfðagreiningar þriðjudaginn 16. maí næstkomandi. Verkefnið er finnskt og var þróað og skipulagt af prófessor Miiu Kivipelto. Niðurstöður þess hafa vakið athygli fyrir góðan árangur hjá þátttakendum og orðið að fyrirmynd margra forvarnaverkefna á þessu sviði víða um…Lesa meira

true

Reynismenn unnu fyrsta leik

KB og Reynir Hellissandi áttust við í 1. umferð í riðli A í 5. deild karla í knattspyrnu á miðvikudaginn og fór leikurinn fram á Domusnovavellinum í Breiðholti.  Heimamenn komust yfir á 21. mínútu þegar Gústaf Hreinn L. Kristjánsson skoraði úr víti en Matteo Tuta jafnaði metin fyrir Reyni tíu mínútum fyrir hálfleik og þannig…Lesa meira

true

Sundstöðum lokað um Hvítasunnuna náist ekki samningar

Starfsfólk sundlauga og íþróttamannvirkja í Borgarbyggð og Snæfellsbæ, auk sex annarra sveitarfélaga á Vestur, Norður- og Austurlandi, hafa samþykkt að leggja niður störf um Hvítasunnuhelgina. Hin sveitarfélögin eru Akureyrarbær, Dalvíkurbyggð, Fjallabyggð, Fjarðabyggð, Skagafjörður og Vesturbyggð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kili stéttarfélagi sem er aðildarfélag að BSRB. Þetta var niðurstaða atkvæðagreiðslu sem lauk á…Lesa meira

true

Bakaði hverabrauð í vegöxl á Hellisheiði

Aukin jarðhitavirkni hefur að undanförnu verið í og undir þjóðveginum í Hveradalabrekku skammt frá Skíðaskálanum á Hellisheiði. Hiti í vegfláum sunnan megin í veginum sjálfum er 86 gráður við yfirborðið. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að starfsmenn, sem sjá um jarðvegsrannsóknir, hafi gert athuganir til þess að ganga úr skugga um að engin hætta…Lesa meira