Jón Haukur Hilmarsson, Sveinn Þór Elinbergsson og Þórheiður Elín Sigurðardóttir eru hæstánægð með nýja húsnæðið. Ljósm. vaks

Formleg opnun Smiðjunnar í Ólafsvík – MYNDASYRPA

Formleg opnun og sýning nýs húsnæðis Smiðjunnar, hæfingar- og vinnustaðar fólks með skerta starfsgetu var haldin seinni partinn í gær en nýja húsnæðið er á Ólafsbraut 55 í Ólafsvík þar sem verslun Olís var áður til húsa. Smiðjan er dagþjónusta fyrir fólk með skerta starfsgetu og heyrir undir Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga.  Í Smiðjunni starfa fimm leiðbeinendur í fjórum stöðugildum og í Smiðjunni eru sex starfsmenn, fimm í fullri stöðu og einn í minna hlutfalli.