
Löður búið að kaupa húsnæði Bílvers – Opið hús í dag í tilefni tímamótanna
Í morgun var gengið frá sölu á húsnæði við Innnesveg 1 á Akranesi sem frá upphafi, eða árið 2006, hefur hýst starfsemi bílaverkstæðisins Bílvers sem einnig hefur rekið sölu- og þjónustuumboð fyrir Honda bíla. Hjónin Reynir Sigurbjörnsson og Magndís Bára Guðmundsdóttir hafa rekið Bílver frá árinu 1985. Voru fyrst á Ægisbraut, þá á Akursbraut en síðustu sautján árin við Innnesveg. Þau eru nú að hætta starfsemi Bílvers. Fimm starfsmenn hafa verið hjá fyrirtækinu og segja þau hjón að starfsmenn þeirra séu komnir með aðra vinnu. Kaupandi að þessu 616 fermetra rými sem hýsti Bílver er Löður ehf. og verður sett upp bílaþvottastöð í húsinu ásamt mögulega annarri starfsemi að auki. Hjónin eiga áfram og leigja út þann hluta hússins sem Kallabakarí er í, en samtals er húseignin 1038 fermetrar.