Brauðbaksturinn stendur hér yfir við yfirborðið á vegöxlinni. Ljósm. Grétar Einarsson

Bakaði hverabrauð í vegöxl á Hellisheiði

Aukin jarðhitavirkni hefur að undanförnu verið í og undir þjóðveginum í Hveradalabrekku skammt frá Skíðaskálanum á Hellisheiði. Hiti í vegfláum sunnan megin í veginum sjálfum er 86 gráður við yfirborðið. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að starfsmenn, sem sjá um jarðvegsrannsóknir, hafi gert athuganir til þess að ganga úr skugga um að engin hætta væri á ferðum, en ökumenn eru engu að síður beðnir um að stöðva ekki bíla sína á þessum slóðum. Rannsóknir Vegagerðarinnar með jarðsjám og hitamyndavélum hafa sýnt að hitinn liggur í sprungu undir veginum. Vísbendingar hafa í allmarga mánuði verið um að hitavirkni á þessum stað hafi aukist.

Hiti rétt við yfirborðið er það hár að þar væri hægt að hægelda t.d. lambakjöt. En það er fleira sem hægt er að matbúa við þessar aðstæður. Grétar Einarsson er starfmaður Vegagerðarinnar á Suðurlandi. Hann ákvað í fyrrdag að bregða á leik, skellti í deig að hverabrauði og bakaði í MacIntosh dós sem hann gróf í vegöxlina, rétt undir yfirborðið. Grétar segir í samtali við Skessuhorn að uppskriftin sem hann notaði sé háleynileg, en hún er úr smiðju Valdimars Sigurjónssonar fyrrum starfsmanns Vegagerðarinnar. Baksturinn tók sólarhring og gæddu starfsmenn Vegagerðarinnar sér á gómsætu vegbökuðu hverabrauði í gær, með smjéri. „Svona gerist þegar maður svíkst um að taka lyfin sín,“ sagði Grétar í samtali við blaðamann - og hló dátt að uppátækinu.

Nú munu að sögn Grétars rannsóknir Vegagerðarinnar halda áfram næstu daga í samstarfi við Orku náttúrunnar og ÍSOR. Mæla á burð vegarins, setja upp hitamyndavélar og hitamæla á veginn. Lögreglan á Suðurlandi hefur fengið upplýsingar um stöðuna og vaktstöð Vegagerðarinnar mun svo fylgjast með vefmyndavélum frá svæðinu – og vakta brauðbaksturinn!

Brauðið fullbakað.
Starfsmenn Vegagerðarinnar nutu afurðarinnar með miklu smjéri.

Bakaði hverabrauð í vegöxl á Hellisheiði - Skessuhorn