Fréttir

true

Vaxandi stuðningur við ESB aðild

Nú eru 44,2% þjóðarinnar fylgjandi aðild Íslands að ESB. Sá stuðningur hefur aldrei mælst meiri, samkvæmt nýlegri könnun Maskínu fyrir Evrópuhreyfinguna. Þeim fækkar sem eru á móti inngöngu í sambandið og eru nú komnir niður í 33,9%. Ef einungis þeir sem taka afstöðu er taldir eru 56,6% hlynntir aðild en 44,4% andvígir. 59% vill að…Lesa meira

true

Skákveisla í boði Taflfélagsins í Snæfellsbæ

Á laugardaginn hélt Taflfélag Snæfellsbæjar minningarmót í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík um þá Hrafn Jökulsson, rithöfund og áhrifamann í skáksögu Íslands, og Ottó Árnason ljóðskáld sem stofnaði á sínum tíma Taflfélag Ólafsvíkur. Mótið hófst klukkan 13 eftir hádegi og kepptar voru átta umferðir eftir Monradformi í átta flokkum. Veglegt verðlaunafé var í opnum flokki þar…Lesa meira

true

Álfurinn fór með Diljá til Liverpool

Í tilefni af því að Álfasala SÁÁ hefst á morgun kom Diljá Pétursdóttir við hjá SÁÁ og tók Álf í yfirstærð með sér á Eurovision í Liverpool. „Hann verður lukkutröllið mitt,“ segir Diljá. „Álfurinn boðar gæfu og gleði fyrir alla sem fá hjálp frá SÁÁ. Ég er viss um að þessir jákvæðu álfastraumar fylgja mér…Lesa meira

true

Endurskoða skólastefnu Grundarfjarðarbæjar

Bæjarstjórn Grundarfjarðar hefur samþykkt tillögu skólanefndar um að endurskoða skólastefnu sveitarfélagsins sem er frá árinu 2014. Ásgarður skólaráðgjöf mun hafa umsjón með verkefninu ásamt stýrihópi, sem bæjarstjórn hefur skipað. Verkefnið er fólgið í því að greina núverandi stöðu á gildandi skólastefnu og skólastarfi, móta nýja stefnu sem fær heitið menntastefna en í henni verður sett…Lesa meira

true

Endurbyggja ríflega átta kílómetra af Klofningsvegi

Vegagerðin áformar að endurbyggja 8,3 km langan vegarkafla á Klofningsvegi (590), milli Vestfjarðarvegar (60) og Kýrunnarstaða í Hvammssveit í Dölum. Komin er út kynningarskýrsla vegna könnunar á matsskyldu fyrirhugaðra framkvæmda sem gera á samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Í skýrslu Vegagerðarinnar um framkvæmdina segir að markmiðið með henni sé að bæta vegasamgöngur við…Lesa meira

true

Framkvæmdir í fullum gangi í Hvalfjarðarsveit

Ýmsar framkvæmdir eru og hafa verið í gangi síðustu mánuði í Hvalfjarðarsveit. Framkvæmdir við lagningu hitaveitu, Heiðarveitu, í Leirársveit hófust um miðjan apríl 2022 og hefur jarðvinnuverktaki lokið sínu verki samkvæmt verksamningi. Fjölmargir þeirra notenda sem óskuðu eftir tengingu inn á veituna hafa nú þegar tengst henni á meðan aðrir eru skemmra á veg komnir…Lesa meira

true

Leggja til að sýningarhald verði í félagsheimilinu Árbliki

Vinnuhópur um safnamál í Dalabyggð hefur skilað af sér greinargerð. Var hópurinn skipaður 23. febrúar og falið að halda utan um vinnu við að finna Byggðasafni og listasafni Dalamanna nýja aðstöðu, m.t.t. varðveislu og miðlunar. Voru skoðaðir ýmsir valmöguleikar varðandi húsnæði fyrir safnið og leggur hópurinn til, að lokinni sinni vinnu, að geymsluhúsnæði fyrir safnkost…Lesa meira

true

Skólakór Grundaskóla á Landsmóti barna- og unglingakóra

Nú á vormánuðum hefur verið nóg um að vera hjá skólakór Grundaskóla á Akranesi. Bæði eldri og yngir hópar hafa farið í leikskólaheimsóknir og yngri hópurinn fór nýlega í söng- og ísferð í Frystihúsið við Kirkjubraut þar sem hann söng nokkur lög. Fram kemur á vef Grundaskóla að um næstsíðustu helgi hafi eldri hópurinn tekið…Lesa meira

true

Lekum strandveiðibát komið til bjargar

Áhöfn björgunarskips Landsbjargar, Bjargar í Rifi, var í dag kölluð út á hæsta forgangi vegna strandveiðibáts sem leki hafði komið að. Útkallið kom laust fyrir klukkan 14. Báturinn var þá staddur rétt vestur af Snæfellsnesi, utan við Öndverðanesvita. Þyrla frá Landhelgisgæslunni var einnig kölluð út. Nærstaddir bátar komu skipverjanum til aðstoðar og var hægt að…Lesa meira

true

Fótboltamótin komin á fullt

Snæfellsnessamstarfið sendi nokkur lið á nýafstaðið Cheeriosmót Víkings í Reykjavík sem fram fór um helgina. Frábært veður var um helgina og kjöraðstæður til knattspyrnuiðkunnar. Stórglæsileg tilþrif sáust í Fossvoginum en sjötti, sjöundi og áttundi flokkur karla og kvenna öttu kappi um helgina.Lesa meira