
Framkvæmdir við lagningu Heiðarveitu í Leirársveit. Ljósm. hvalfjardarsveit.is
Framkvæmdir í fullum gangi í Hvalfjarðarsveit
Ýmsar framkvæmdir eru og hafa verið í gangi síðustu mánuði í Hvalfjarðarsveit. Framkvæmdir við lagningu hitaveitu, Heiðarveitu, í Leirársveit hófust um miðjan apríl 2022 og hefur jarðvinnuverktaki lokið sínu verki samkvæmt verksamningi. Fjölmargir þeirra notenda sem óskuðu eftir tengingu inn á veituna hafa nú þegar tengst henni á meðan aðrir eru skemmra á veg komnir og því ljóst að notendum mun halda áfram að fjölga eftir því sem líður á árið. Framkvæmdir við veituna hafa fram að þessu gengið vel.