
Austasti hluti Klofningsvegar er eins og sjá má við „stóru tána“ á stígvéli Hvammsfjarðar. Teikning: Vegagerðin.
Endurbyggja ríflega átta kílómetra af Klofningsvegi
Vegagerðin áformar að endurbyggja 8,3 km langan vegarkafla á Klofningsvegi (590), milli Vestfjarðarvegar (60) og Kýrunnarstaða í Hvammssveit í Dölum. Komin er út kynningarskýrsla vegna könnunar á matsskyldu fyrirhugaðra framkvæmda sem gera á samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana.