Fréttir

true

Endurbyggja ríflega átta kílómetra af Klofningsvegi

Vegagerðin áformar að endurbyggja 8,3 km langan vegarkafla á Klofningsvegi (590), milli Vestfjarðarvegar (60) og Kýrunnarstaða í Hvammssveit í Dölum. Komin er út kynningarskýrsla vegna könnunar á matsskyldu fyrirhugaðra framkvæmda sem gera á samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Í skýrslu Vegagerðarinnar um framkvæmdina segir að markmiðið með henni sé að bæta vegasamgöngur við…Lesa meira

true

Framkvæmdir í fullum gangi í Hvalfjarðarsveit

Ýmsar framkvæmdir eru og hafa verið í gangi síðustu mánuði í Hvalfjarðarsveit. Framkvæmdir við lagningu hitaveitu, Heiðarveitu, í Leirársveit hófust um miðjan apríl 2022 og hefur jarðvinnuverktaki lokið sínu verki samkvæmt verksamningi. Fjölmargir þeirra notenda sem óskuðu eftir tengingu inn á veituna hafa nú þegar tengst henni á meðan aðrir eru skemmra á veg komnir…Lesa meira

true

Leggja til að sýningarhald verði í félagsheimilinu Árbliki

Vinnuhópur um safnamál í Dalabyggð hefur skilað af sér greinargerð. Var hópurinn skipaður 23. febrúar og falið að halda utan um vinnu við að finna Byggðasafni og listasafni Dalamanna nýja aðstöðu, m.t.t. varðveislu og miðlunar. Voru skoðaðir ýmsir valmöguleikar varðandi húsnæði fyrir safnið og leggur hópurinn til, að lokinni sinni vinnu, að geymsluhúsnæði fyrir safnkost…Lesa meira

true

Skólakór Grundaskóla á Landsmóti barna- og unglingakóra

Nú á vormánuðum hefur verið nóg um að vera hjá skólakór Grundaskóla á Akranesi. Bæði eldri og yngir hópar hafa farið í leikskólaheimsóknir og yngri hópurinn fór nýlega í söng- og ísferð í Frystihúsið við Kirkjubraut þar sem hann söng nokkur lög. Fram kemur á vef Grundaskóla að um næstsíðustu helgi hafi eldri hópurinn tekið…Lesa meira

true

Lekum strandveiðibát komið til bjargar

Áhöfn björgunarskips Landsbjargar, Bjargar í Rifi, var í dag kölluð út á hæsta forgangi vegna strandveiðibáts sem leki hafði komið að. Útkallið kom laust fyrir klukkan 14. Báturinn var þá staddur rétt vestur af Snæfellsnesi, utan við Öndverðanesvita. Þyrla frá Landhelgisgæslunni var einnig kölluð út. Nærstaddir bátar komu skipverjanum til aðstoðar og var hægt að…Lesa meira

true

Fótboltamótin komin á fullt

Snæfellsnessamstarfið sendi nokkur lið á nýafstaðið Cheeriosmót Víkings í Reykjavík sem fram fór um helgina. Frábært veður var um helgina og kjöraðstæður til knattspyrnuiðkunnar. Stórglæsileg tilþrif sáust í Fossvoginum en sjötti, sjöundi og áttundi flokkur karla og kvenna öttu kappi um helgina.Lesa meira

true

Úrslit kunngjörð í stærðfræðikeppni grunnskólanema

Síðastliðinn laugardag voru kynnt úrslit og fram fór verðlaunaafhending í stærðfræðikeppni grunnskóla á Vesturlandi. Sem fyrr var það Fjölbrautaskóli Vesturlands sem stóð fyrir keppninni en Norðurál veitti vegleg peningaverðalaun. Úrslit urðu þau að í áttunda bekk varð Daníel Guðjónsson í Grundaskóla á Akranesi efstur, Andri Ólafur Jónsson úr Grunnskólanum í Borgarnesi annar og bekkjarsystir hans…Lesa meira

true

Kári tapaði á móti Augnabliki

Kári og Augnablik léku á laugardaginn í 3. deild karla í knattspyrnu og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Gestirnir komust yfir á 37. mínútu þegar Tumi Fannar Gunnarsson fékk boltann í vítateignum, hann sólaði tvo leikmenn Kára og lagði boltann í markið framhjá markmanni Kára. Heimamenn reyndu hvað þeir gátu til að jafna metin en…Lesa meira

true

Strákar sérstaklega hvattir til að bíða ekki með háskólanám

Ný könnun á meðal framhaldsskólanema, sem gerð var af Rannsóknum og greiningu fyrir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið, leiðir í ljós umtalsverðan kynjamun á áformum stelpna og stráka þegar kemur að innritun í háskóla í haust. Könnunin var gerð í 13 framhaldsskólum á meðal þeirra nemenda sem stefna á útskrift í vor. Athygli vekur að aðeins…Lesa meira

true

Skagamenn byrjuðu Lengjudeildina með tapi

ÍA og Grindavík áttust við í 1. umferð Lengjudeildar karla á föstudaginn og fór leikurinn fram á Akranesvelli. Gestirnir komust yfir strax á fjórðu mínútu eftir sofandahátt í varnarleik heimamanna þegar hár bolti skoppaði inn fyrir vörn ÍA þar sem sóknarmaðurinn Dagur Ingi Hammer Gunnarsson var mættur og náði að skalla boltann. Árni Marinó Einarsson…Lesa meira