Fréttir

true

Framkvæmdir á fullu við nýja síkisbrú

Búið er að fjarlægja báðar brýrnar yfir Ferjukotssíkin í Borgarfirði en önnur þeirra varð fyrir tjóni þegar miklar leysingar urðu í febrúar á þessu ári. Vegagerðin vinnur nú að framkvæmdum við Ferjukotssíkin þar sem brýrnar stóðu en nýrri brú verður komið fyrir á næstu vikum. Nýja brúin er komin á verkstað og eru áætluð verklok…Lesa meira

true

Frumsýndu nýja heimildamynd

Heimildamyndin Út fyrir rammann var frumsýnd í Bíóhöllinni á Akranesi í gærkvöldi. Myndin er afrakstur vinnu nemenda Grundaskóla að undanförnu og er tuttugu ára sögu söngleikja í skólanum gerð skil í myndinni. Leiðbeinandi og stjórnandi við gerð myndarinnar var Margrét Saga Clothier, sem hér tekur við blómum að sýningu lokinni frá Flosa Einarssyni.Lesa meira

true

Afladagbókin er nýtt smáforrit fyrir íslenska sjómenn

Afladagbókin er nýtt smáforrit sem íslenskir sjómenn geta nú nálgast á heimasíðunni https://afladagbok.com. Það er fyrirtækið Fisheries Technologies ehf. sem hannar það og selur. „Hér er á breiðum grunni hægt að vera með víðtækt utanumhald um veiðiferðir og aflabrögð. Afladagbókin er hönnuð með þarfir íslenskra smábátasjómanna í huga og fylgir þjónustan þeim úr höfn og…Lesa meira

true

Heiðarskóli hélt upp á Dag umhverfisins

Á þriðjudaginn hélt Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit upp á Dag umhverfisins. Allir nemendur skólans fóru í vettvangsferð í Hafnarskóg. Yngsta- og miðstig héldu sig við fjöruna í strekkingsvindi, sól og kulda, skoðuðu lífríkið og náttúruna. Þó kalt væri fundu margir sér einstaka upplifun og höfðu gaman af. Ánægjulegt er að segja frá því að lítið rusl…Lesa meira

true

Fyrrverandi prestar gerðir áhrifalausir í Prestafélaginu

Aðalfundur Prestafélags Íslands var haldinn í Grensáskirkju í Reykjavík í gær. Auk venjulegra aðalfundarstarfa var á dagskrá fundarins að gera breytingar á lögum félagsins. Laganefnd hafði fyrir fundinn lagt til nokkrar breytingar. Þar á meðal var lögð til breyting á félagsaðild sem útilokar fyrrum presta, pastores emiriti, sem nú flokkast sem fagaðilar í félaginu, frá…Lesa meira

true

Björn Bergmann semur við ÍA

Skagamenn hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi tímabil í Lengjudeildinni í sumar. Knattspyrnumaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson sem er 32 ára hefur samið við uppeldisfélag sitt og mun spila með ÍA í sumar eftir að hafa spilað erlendis sem atvinnumaður síðustu fimmtán ár. Björn Bergmann hóf atvinnuferil sinn sautján ára gamall árið 2008 þegar hann samdi…Lesa meira

true

Hönnuðu þrívíð verk í skólanum

Myndlist er allt í kringum okkur og getur verið mjög fjölbreytt. Sífellt eru að skjóta upp kollinum fleiri aðferðir sem byggja á sjónrænni framsetningu. Nemendur í Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum voru nýverið í vali sem heitir þrívíð verk. Eva Lind Jóhannsdóttir, listgreinakennari við GBF, segir að þar hafi verið eitt skylduverkefni sem nemendur gátu útfært…Lesa meira

true

Nytjamarkaður í húsnæðisvanda

Nytjamarkaður Skallagríms í Borgarnesi hefur verið til húsa að Borgarbraut 55 síðan í júní í fyrra en nú er stefnt að niðurrifi hússins. Markaðurinn hefur tímabundið fengið inni í fyrrum sparisjóðs- og ráðhúsi við Borgarbraut 14. Lára Magnúsdóttir hjá körfuknattleiksdeild Skallagríms segir í samtali við Skessuhorn að verið sé að leita að varanlegu húsnæði fyrir…Lesa meira

true

RÚV auglýsir á ný stöðu fréttamanns á Vesturlandi og Vestfjörðum

Fréttastofa RÚV auglýsir nú á ný stöðu fréttamanns á Vesturlandi og Vestfjörðum. Starfið var auglýst í september síðastliðnum en fáar umsóknir bárust og var í kjölfarið tekin sú ákvörðun innan stofnunarinnar að ráða ekki í starfið á þeim tímapunkti. Hefur Fréttastofa RÚV síðan þá sinnt fréttaflutningi af Vesturlandi og Vestfjörðum með því að senda fréttamenn…Lesa meira

true

„Saumakonur hafa aldrei orðið ríkar“

Rætt við textílhönnuðinn Sigríði Björnsdóttur á Akranesi Textílstofan er saumastofa sem er til húsa á Kirkjubraut 56 á Akranesi og er staðsett í húsnæðinu á milli verslananna @home og Krósk. Þar ræður ríkjum textílhönnuðurinn Sigríður Björnsdóttir sem opnaði á þessum stað í byrjun síðasta sumars. Hún flutti á Skagann árið 2019 eftir langa fjarveru og…Lesa meira