
Geir Waage fyrrum sóknarprestur í Reykholti. Ljósm. úr safni.
Fyrrverandi prestar gerðir áhrifalausir í Prestafélaginu
Aðalfundur Prestafélags Íslands var haldinn í Grensáskirkju í Reykjavík í gær. Auk venjulegra aðalfundarstarfa var á dagskrá fundarins að gera breytingar á lögum félagsins. Laganefnd hafði fyrir fundinn lagt til nokkrar breytingar. Þar á meðal var lögð til breyting á félagsaðild sem útilokar fyrrum presta, pastores emiriti, sem nú flokkast sem fagaðilar í félaginu, frá málfrelsis- og atkvæðisrétti á aðalfundum félagsins. Aukinn meirihluta fundarmanna þurfti fyrir samþykkt tillögunnar og náðist hann fram, en 26% greiddu atkvæði gegn tillögunni. Samþykkt breytinganna hafði tafarlaus áhrif því fyrrum formaður Prestafélagsins sagði sig úr því og afsalaði sér jafnframt heiðursfélaga nafnbót í því.