RÚV auglýsir á ný stöðu fréttamanns á Vesturlandi og Vestfjörðum

Fréttastofa RÚV auglýsir nú á ný stöðu fréttamanns á Vesturlandi og Vestfjörðum. Starfið var auglýst í september síðastliðnum en fáar umsóknir bárust og var í kjölfarið tekin sú ákvörðun innan stofnunarinnar að ráða ekki í starfið á þeim tímapunkti. Hefur Fréttastofa RÚV síðan þá sinnt fréttaflutningi af Vesturlandi og Vestfjörðum með því að senda fréttamenn úr Efstaleiti í fréttaferðir en auglýsir nú aftur eftir fréttamanni fyrir svæðið. Umsóknafrestur er til og með 11. maí.  

Starf fréttamanns RÚV á Vesturlandi og Vestfjörðum felst í því að afla frétta af svæðinu og miðla þeim í útvarpi, sjónvarpi og á vefnum ruv.is. Starfið getur verið án staðsetningar eða á starfsstöð RÚV í Borgarnesi, en RÚV er þar með aðstöðu í húsnæði Menntaskólans. Segir í auglýsingu að öll séu hvött til að sækja um starfið, óháð kyni, uppruna, fötlun eða starfsgetu.

RÚV auglýsir á ný stöðu fréttamanns á Vesturlandi og Vestfjörðum - Skessuhorn