
Úr vettvangsferð leikskólans Skýjaborgar.
Heiðarskóli hélt upp á Dag umhverfisins
Á þriðjudaginn hélt Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit upp á Dag umhverfisins. Allir nemendur skólans fóru í vettvangsferð í Hafnarskóg. Yngsta- og miðstig héldu sig við fjöruna í strekkingsvindi, sól og kulda, skoðuðu lífríkið og náttúruna. Þó kalt væri fundu margir sér einstaka upplifun og höfðu gaman af. Ánægjulegt er að segja frá því að lítið rusl fannst á svæðinu en til stóð að plokka.