Fréttir

true

Stuðningur til að auka frístundastarf barna í sumar

Ákveðið hefur verið að ríkið styðji fjárhagslega við þau sveitarfélög sem hyggjast í sumar auka við frístundarstarf fyrir börn og unglinga í viðkvæmri stöðu vegna áhrifa heimsfaraldurs.  „Ljóst  er  að  heimsfaraldur Covid-19  hefur  haft  mikil  áhrif  á  líf  flestra  barna  og fjölskyldna hér á landi en ákveðnir hópar barna hafa þó orðið fyrir meiri áhrifum…Lesa meira

true

Íbúafjöldi á Vesturlandi kominn yfir sautján þúsund

Íbúar á Vesturlandi voru 1. maí síðastliðinn 17.063 talsins og hafa aldrei verið fleiri. Fjölgun síðustu sex mánuði, frá 1. desember síðastliðnum er 0,2%. Flestir búa á Akranesi en þar eru nú 7.827 íbúar og hefur reyndar fækkað um nokkra frá því í desember. Í Borgarbyggð eru nú 3.892 búsettir og fjölgar. Þriðja stærsta sveitarfélagið…Lesa meira

true

Samningi við ON sagt upp

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar 9. maí síðastliðinn var sagt upp þjónustusamningi við Orku náttúrunnar frá árinu 2014. Ráðið lagði til að eftirfarandi verði boðið út: Útskipting lampa í götulýsingu yfir í LED ljós, viðhald og rekstur gatnalýsingar og orkukaup gatnalýsingar og stofnana Akraneskaupstaðar. Samið verður við Liska ehf. um gerð útboðsgagna og umsjón…Lesa meira

true

Háskólalestin er væntanleg til Ólafsvíkur síðar í mánuðinum

Háskólalest Háskóla Íslands er nú á ferð um landið og kemur fram á nokkrum stöðum. Þessa dagana er hún í Grindavík. Í boði er fjölbreytt dagskrá fyrir fólk á öllum aldri. Haldnar eru m.a. kennarasmiðjur og námskeið fyrir grunnskólanemendur. Hér á Vesturlandi mun lestin að þessu sinni fara til Ólafsvíkur þar sem hún verður dagana…Lesa meira

true

Fundu útigenginn fjárhóp í Múla

Síðasta miðvikudag voru þangsláttumenn, þeir Jóhannes Haraldsson og Björgvin Matthías Hallgrímsson, að dóla um veginn í Kollafirði í Reykhólahreppi og ergja sig á norðaustan áttinni sem gerir þeim ómögulegt að athafna sig við sláttinn. Fram kemur á heimasíðu Reykhólahrepps að þá hafi þeir komið auga á fjárhóp í túninu í Múla, sex fullorðnar kindur og…Lesa meira

true

Hættir rekstri í Baulunni um næstu mánaðamót

Baulan veitingar ehf mun hætta sem rekstraraðili Baulunnar í Borgarfirði 1. júní næstkomandi. Það er Haukur Ragnarsson veitingamaður sem hefur rekið staðinn undir þessu nafni síðan fyrir um það bil ári. Hann hættir nú rekstrinum og snýr sér að öðrum verkefnum fyrir sunnan. Skeljungur keypti Bauluna í september 2020 og lokaði staðnum í janúar 2021…Lesa meira

true

Sýna Mean girls í Menntaskóla Borgarfjarðar

Leikhópur nemenda Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi, auk hóps nemenda úr tíunda bekk Grunnskóla Borgarness, frumsýndi á þriðjudaginn leikritið Mean girls í Hjálmakletti, sal skólans. Leikstjórar voru þau Agnar Jón Egilsson og Ylfa Ösp Áskelsdóttir. Var önnur sýning á verkinu í gærkvöldi.  Á annað hundrað áhorfenda nutu sýningarinnar í gær og leikendur uppskáru mikið lófaklapp fyrir…Lesa meira

true

Leiðbeiningar um eggjatínslu frá villtum fuglum

Matvælastofnun fær mikið af fyrirspurnum um hvort fólki stafi smithætta af tínslu og neyslu eggja villtra fugla vegna fuglaflensu. Stofnunin vill því koma nokkrum upplýsingum á framfæri. Meðal annars þeim að afbrigðið af fuglaflensuveirunni sem nú er mest um í Evrópu og hefur greinst hér á landi, veldur almennt ekki sýkingum í fólki. Einstaka smit…Lesa meira

true

Leiðtogaspjall í Borgarbyggð

Tveir fulltrúar frá öllum framboðum sem bjóða fram lista í Borgarbyggð fyrir kosningarnar á laugardaginn komu saman á leiðtogafundi í gærkvöldi. Fundurinn var tekinn upp og sýndur í streymi á kvikborg.is en var auk þess aðgengilegur hér á vef Skessuhorns. Leiðtogafundurinn var skipulagður af Kvikmyndafjelagi Borgarfjarðar sem sá auk þess um alla tæknivinnu og útsendingu.…Lesa meira

true

Varað er við slæmu ástandi vega í Dölum og Reykhólasveit

Samkvæmt Vegagerðinni er nú þæfingur á Fróðárheiði en krapi á Holtavörðuheiði. Hálka er á Bröttubrekku og á Svínadal en hálkublettir á nokkrum leiðum í landshlutanum. Því er við þetta að bæta að Vegagerðin varar við mjög slæmu ástandi vega í Dalabyggð og Reykhólasveit, en unnið er að viðgerð.Lesa meira