Háskólalestin er væntanleg til Ólafsvíkur síðar í mánuðinum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Háskólalest Háskóla Íslands er nú á ferð um landið og kemur fram á nokkrum stöðum. Þessa dagana er hún í Grindavík. Í boði er fjölbreytt dagskrá fyrir fólk á öllum aldri. Haldnar eru m.a. kennarasmiðjur og námskeið fyrir grunnskólanemendur. Hér á Vesturlandi mun lestin að þessu sinni fara til Ólafsvíkur þar sem hún verður dagana 26.-28. maí.\r\n\r\nMegináherslan í starfi Háskólalestarinnar er lögð á að kynna vísindi á lifandi og fjölbreyttan hátt fyrir ungu fólki, styðja við starf grunnskólanna og efla tengsl við landsmenn á öllum aldri. Í áhöfn lestarinnar eru kennarar og nemendur við Háskóla Íslands, sem flestir hverjir eru einnig leiðbeinendur í Vísindasmiðju HÍ og Háskóla unga fólksins.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"53410,53411\"]",
  "innerBlocks": []
}
Háskólalestin er væntanleg til Ólafsvíkur síðar í mánuðinum - Skessuhorn