
Fjárhópurinn kominn inn í réttina. Ljósm. Jóhannes Haraldsson.
Fundu útigenginn fjárhóp í Múla
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Síðasta miðvikudag voru þangsláttumenn, þeir Jóhannes Haraldsson og Björgvin Matthías Hallgrímsson, að dóla um veginn í Kollafirði í Reykhólahreppi og ergja sig á norðaustan áttinni sem gerir þeim ómögulegt að athafna sig við sláttinn. Fram kemur á heimasíðu Reykhólahrepps að þá hafi þeir komið auga á fjárhóp í túninu í Múla, sex fullorðnar kindur og tvö lömb. Þeim fannst fremur ólíklegt að bændur væru búnir að sleppa lambfé í þessu tíðarfari, svo þeir kölluðu eftir aðstoð til að handsama féð.\r\n\r\nEftir nokkurn eltingaleik náðist að reka kindurnar inn í skilaréttina á Eyri, fullorðna féð hálfu ári of seint, en lömbin misseri fyrr en vant er. Féð reyndist vera frá Fremri Gufudal og Skálanesi, þrílemba með dætur og tveir hrútar. Kindurnar eru í góðu ásigkomulagi þrátt fyrir að hafa gengið úti frekar leiðinlegan vetur.",
"innerBlocks": []
}