{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Baulan veitingar ehf mun hætta sem rekstraraðili Baulunnar í Borgarfirði 1. júní næstkomandi. Það er Haukur Ragnarsson veitingamaður sem hefur rekið staðinn undir þessu nafni síðan fyrir um það bil ári. Hann hættir nú rekstrinum og snýr sér að öðrum verkefnum fyrir sunnan. Skeljungur keypti Bauluna í september 2020 og lokaði staðnum í janúar 2021 í nokkra mánuði og hefur gert allt upp af miklum myndarskap. Það er Orkan dótturfélag Skeljungs sem á staðinn núna og eldsneytið er selt undir þeirra nafni. Ekki liggur fyrir á þessu stigi hver tekur við rekstrinum 1. júní.",
"innerBlocks": []
}
Hættir rekstri í Baulunni um næstu mánaðamót - Skessuhorn