Þau mættu fyrir hönd framboða sinna. F.v. Logi Sigurðsson og Bjarney Bjarnadóttir frá Samfylkingu og Viðreisn, Thelma Dögg Harðardóttir og Brynja Þorsteinsdóttir frá VG, Guðveig Lind Eyglóardóttir og Davíð Sigurðsson frá Framsókn og Lilja Björg Ágústsdóttir og Jóhanna Marín Björnsdóttir frá Sjálfstæðisflokki.

Leiðtogaspjall í Borgarbyggð

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Tveir fulltrúar frá öllum framboðum sem bjóða fram lista í Borgarbyggð fyrir kosningarnar á laugardaginn komu saman á leiðtogafundi í gærkvöldi. Fundurinn var tekinn upp og sýndur í streymi á kvikborg.is en var auk þess aðgengilegur hér á vef Skessuhorns. Leiðtogafundurinn var skipulagður af Kvikmyndafjelagi Borgarfjarðar sem sá auk þess um alla tæknivinnu og útsendingu. Límtré Vírnet lagði til húsnæðið sem vissulega var óvenjulegt myndver, en þátturinn var tekinn upp í blikksmiðju fyrirtækisins. Spyrlar voru gömlu fréttahaukarnir Gísli Einarsson og Magnús Magnússon. Fyrirkomulag fundarins var þannig að fulltrúar flokkanna fjögurra svöruðu ýmsum spurningum sem brenna á kjósendum í sveitarfélaginu. Í tveimur innslögum í þættinum sögðu kjósendur á förnum vegi frá hvað brennur á þeim og hvað væri það besta við að búa í Borgarbyggð. Alls bar um tuttugu málefni á góma, en fyrirferðarmest í umræðunni voru skipulagsmál en sitthvað fleira einnig. <a href=\"https://www.youtube.com/watch?v=YtOy9MyAjKY\">Hægt er að skoða upptöku af fundinum hér.</a>",
  "innerBlocks": []
}
Leiðtogaspjall í Borgarbyggð - Skessuhorn