Fréttir

true

„Alltaf fiðringur í belgnum á mér“

Víkingur Ólafsvík hefur spilað í Lengjudeildinni síðustu fjögur tímabil en féll úr deildinni í fyrra og leikur í 2. deild í sumar. Guðjón Þórðarson tók við liðinu um mitt sumar á síðasta tímabili og þjálfaði liðið einnig tímabilið 2020. Blaðamaður Skessuhorns sló á þráðinn til Guðjóns og spurði hann fyrst hvernig undirbúningstímabilið hefði gengið hjá…Lesa meira

true

Staðfest að fuglaflensuveiran er skæð

Nú hefur verið staðfest að fuglaflensuveirur sem greinst hafa að undanförnu hér á landi eru af hinu skæða afbrigði H5N1 sem geisar í nágrannalöndum okkar um þessar mundir. „Í gildi er efsta stig viðbúnaðar vegna fuglaflensu. Smithætta fyrir alifugla er mikil og brýnt að fuglaeigendur gæti ýtrustu sóttvarna. Fólk er enn hvatt til að tilkynna…Lesa meira

true

„Þá var útvarpið ekki komið“

Litið aftur tæpa öld og barnæska Þorsteins frá Húsafelli rifjuð upp Þorsteinn Þorsteinsson lauk stúdentsprófi árið 1950 og magistersprófi í lífefnafræði frá Hafnarháskóla árið 1956. Í síðustu viku átti hann 76 ára útskriftarafmæli frá Bændaskólanum á Hvanneyri, nú Landbúnaðarháskóla Íslands. Blaðamaður Skessuhorns heimsótti hann og Eddu Emilsdóttur konu hans á fallegu heimili þeirra í Reykjavík.…Lesa meira

true

Sindratorfæran verður um helgina

Flugbjörgunarsveitin á Hellu og AÍNH halda Sindra torfærukeppnina í 48. skiptið á akstursíþróttasvæði sínu rétt austan við Hellu nú um helgina. Keppnin er liður í Íslandsmeistaramótinu í torfæru en 1. og 2. umferðin fara fram að þessu sinni. Keppnin hefst klukkan 11 báða daga. Eknar verða sex brautir hvorn dag í sandbrekkum, ánni og í…Lesa meira

true

Ungmenni sátu að sumbli – í skoðun að svipta staðinn vínveitingaleyfi

Rétt undir miðnætti síðasta föstudagskvöld var tilkynnt um mögulega drykkju ungmenna á stað með vínveitingaleyfi á Akranesi. Lögregla fór á staðinn og var um að ræða fimm sextán ára ungmenni sem sátu saman inni á staðnum. Lögregla greindi ummerki um neyslu áfengis á borðinu þar sem þau sátu, einhverjir gáfu upp rangar kennitölur og kom…Lesa meira

true

Fjölmenni á Morgunstund í Brekkó

Eftir tveggja ára hlé vegna faraldursins var loksins hægt að halda hefðbundna morgunstund í Brekkubæjarskóla á Akranesi í morgun. Þar sýndu nemendur skólans úr öllum bekkjum hin ýmsu atriði eins og söng, dans og hljóðfæraleik og stóðu sig með mikilli prýði. Þá voru veittar viðurkenningar til nemenda úr öllum bekkjum fyrir að standa sig vel…Lesa meira

true

Þórarinn Jónsson vinnur til evrópskra ljósmyndaverðlauna

Í lok apríl var viðtal í Skessuhorni við Þórarinn Jónsson ljósmyndara sem býr á Akranesi og rekur ferðaþjónustufyrirtækið Thor Photography. Nú í byrjun maí vann Þórarinn til fyrstu verðlauna í alþjóðlegri ljósmyndasamkeppni samtaka Evrópskra ljósmyndara (Federation of European Professional Photographers). Þórarinn fékk verðlaun fyrir þrjár myndir í flokki landslagsljósmynda, en um 2600 myndir bárust til…Lesa meira

true

Voot opnaði nýja verslun í Ólafsvík

Verslun Voot var formlega opnuð í dag í Ólafsvík. Hún er til húsa við Ólafsbraut 19 þar sem Brauðgerð Ólafsvíkur var áður. Húsnæðið fékkst afhent 1. febrúar síðastliðinn og síðan hafa iðnarmenn unnið hörðum höndum við að lagfæra það svo það henti undir starfsemi Voot. Björn Hilmarsson, sem var áður útibússtjóri hjá Olís, rekur þessa…Lesa meira

true

Kuldalegt um að litast í byrjun maí

Fremur kalt er víða um land og snjóað hefur niður á láglendi meðal annars á norðanverðu landinu, en einnig á Snæfellsnesi. Þessi mynd var tekin skömmu fyrir hádegi í dag í átt að Kirkjufellsfossi við Grundarfjörð. Jörð er alhvít.Lesa meira

true

Haldið áfram að steypa gangstéttar

Vinnufélagarnir Þorkell Gunnar Þorkelsson og Ásmundur Ragnarsson voru önnum kafnir við að slétta úr steypu sem nýbúið var að sturta meðfram Grundargötunni í Grundarfirði þegar ljósmyndari Skessuhorns átti leið hjá. Nú þegar vorið er komið er allt að fara á fullt við að klára að steypta gangstéttarnar sem ekki náðist að ljúka við síðasta haust.Lesa meira