Guðjón Þórðarson, þjálfari Víkings. Ljósm. af

„Alltaf fiðringur í belgnum á mér“

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Víkingur Ólafsvík hefur spilað í Lengjudeildinni síðustu fjögur tímabil en féll úr deildinni í fyrra og leikur í 2. deild í sumar. Guðjón Þórðarson tók við liðinu um mitt sumar á síðasta tímabili og þjálfaði liðið einnig tímabilið 2020. Blaðamaður Skessuhorns sló á þráðinn til Guðjóns og spurði hann fyrst hvernig undirbúningstímabilið hefði gengið hjá þeim? „Það hefur verið brösótt, þetta var erfiður vetur og veðrið var að stríða okkur. Það var mikill snjór á vellinum og hann varð ekki snjólaus fyrr en í endaðan mars. Svo er hópurinn tvískiptur, fimm leikmenn sem eru að æfa með liðum í Reykjavík, hinir fyrir vestan og svo hafa útlendingarnir verið að koma á sitt hvorum tímanum.“\r\n\r\nHafa orðið miklar breytingar á liðinu frá síðasta tímabili? „Mjög miklar, það er kominn ákveðinn kjarni af heimamönnum og það er mjög jákvætt. Það eru ungir strákar sem hafa verið að æfa vel í vetur og eru að koma inn í hópinn. Þeir eru mjög jákvæðir, hafa lagt mikið á sig og eru tilbúnir í slaginn. Æfingahópurinn telur um 16-18 leikmenn, það er ekki meira en það. Við erum komnir með miðvörð frá Spáni, miðjumann frá Þýskalandi og kantmann frá Englandi. Svo er spurning hvort við náum að bæta við hópinn á síðustu metrunum með að fá menn að láni, það er verið að skoða það en það er ekki auðvelt núna að fá menn vestur. Menn bíða ekki í röðum að koma í Ólafsvík því við erum ekki eins aðlaðandi og þegar við vorum í Lengjudeildinni.“\r\n\r\n<em>Sjá nánar spjall við Guðjón í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
„Alltaf fiðringur í belgnum á mér“ - Skessuhorn