Ungmenni sátu að sumbli – í skoðun að svipta staðinn vínveitingaleyfi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Rétt undir miðnætti síðasta föstudagskvöld var tilkynnt um mögulega drykkju ungmenna á stað með vínveitingaleyfi á Akranesi. Lögregla fór á staðinn og var um að ræða fimm sextán ára ungmenni sem sátu saman inni á staðnum. Lögregla greindi ummerki um neyslu áfengis á borðinu þar sem þau sátu, einhverjir gáfu upp rangar kennitölur og kom í ljós að einn þeirra var aðeins 14 ára. Dyravörslu var ábótavant á staðnum og var rætt við eigendur sem ekki þóttust vita um aldur ungmennanna. Haft var samband við foreldra og barnaverndarnefnd upplýst um málið. Eftir þetta var staðnum lokað og öllum vísað út. Óljóst er hvort staðurinn missi leyfið en það er í athugun hjá lögreglu.",
"innerBlocks": []
}
Ungmenni sátu að sumbli - í skoðun að svipta staðinn vínveitingaleyfi - Skessuhorn