{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Flugbjörgunarsveitin á Hellu og AÍNH halda Sindra torfærukeppnina í 48. skiptið á akstursíþróttasvæði sínu rétt austan við Hellu nú um helgina. Keppnin er liður í Íslandsmeistaramótinu í torfæru en 1. og 2. umferðin fara fram að þessu sinni. Keppnin hefst klukkan 11 báða daga. Eknar verða sex brautir hvorn dag í sandbrekkum, ánni og í mýrinni. Síðastliðin ár hafa gríðarlega margir áhorfendur mætt á Hellutorfæruna og mjög skemmtileg stemning hefur myndast í brekkunum. „Í covid ástandinu lærðum við að senda út beint og að sjálfsögðu verður sýnt beint frá keppninni fyrir þá sem ekki komast á staðinn á facebook síðu FBSH,“ segir í tilkynningu. Rúmlega 90 sjálfboðaliðar FBSH munu sjá til þess að allt fari vel fram og að áhorfendur skemmti sér konunglega hvort sem er á staðnum eða heima í stofu.\r\n\r\nSkúli Kristjánsson er ríkjandi Íslands- og heimsmeistari í sérútbúna flokknum. Hann er skráður til leiks og á eftir að þurfa hafa sig allan við að vera í toppbaráttunni. Þeir Þór Þormar Pálsson og Ólafur Bragi Jónsson eru báðir fyrrverandi Íslandsmeistarar og munu ekki gefa neitt eftir, segir í tilkynningu frá félaginu.",
"innerBlocks": []
}