
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun afhjúpa söguskilti við Leira í Leirársveit á morgun, sumardaginn fyrsta, 21. apríl klukkan 12. Á skiltinu er farið yfir sögu Leirárkirkju, prentsmiðjuna á Leirárgörðum og Beitistöðum og sagt frá Magnúsi Stephensen og Jóni Thoroddsen. Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar mun flytja ávarp og því næst mun Katrín afhjúpa skiltið en hún…Lesa meira








