Leirárkirkja í Leirársveit. Ljósm. úr safni

Katrín Jakobs afhjúpar söguskilti við Leirá

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun afhjúpa söguskilti við Leira í Leirársveit á morgun, sumardaginn fyrsta, 21. apríl klukkan 12. Á skiltinu er farið yfir sögu Leirárkirkju, prentsmiðjuna á Leirárgörðum og Beitistöðum og sagt frá Magnúsi Stephensen og Jóni Thoroddsen. Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar mun flytja ávarp og því næst mun Katrín afhjúpa skiltið en hún er afkomandi Jóns Thoroddsen sem er einn af þeim sem sagt er frá á skiltinu.\r\n\r\nAð afhjúpun lokinni mun Ásgeir Kristinsson frá Leirá segja frá sögu staðarins. Kór Saurbæjarprestakalls syngur nokkur lög og boðið verður upp á veitingar sem sóknarnefnd Innra-Hólmskirkju sér um.\r\n\r\nFram kemur á vefsíðu Hvalfjarðarsveitar að þetta sé þriðji liður í verkefninu „Merking sögu og merkisstaða í Hvalfjarðarsveit“ en áformað er að merkja tíu staði víðs vegar í sveitarfélaginu.",
  "innerBlocks": []
}
Katrín Jakobs afhjúpar söguskilti við Leirá - Skessuhorn