Fréttir

true

Tveir listar bjóða fram í Snæfellsbæ

Líkt og fyrir fjórum árum verða tveir framboðslistar í kjöri í Snæfellsbæ. Það er D-listi Sjálfstæðisflokks og J-listi Bæjarmálasamtaka Snæfellsbæjar. Kristinn Jónasson bæjarstjóri staðfestir þetta í samtali við Skessuhorn.Lesa meira

true

Nýr framboðslisti í sameinuðu sveitarfélagi á Snæfellsnesi

Nýr framboðslisti hefur komið fram í sameinuðu sveitarfélagi Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar. Ber hann nafnið Íbúalistinn Stykkishólmi og Helgafellssveit og hefur listabókstafinn Í. Listann leiðir Haukur Garðarsson skrifstofustjóri frá Rarik og í öðru sæti er Ragnheiður Harpa Sveinsdóttir kennari. Listinn í heild er þannig: Nr. 1. Haukur Garðarsson, skrifstofustjóri hjá Rarik Nr. 2. Ragnheiður Harpa Sveinsdóttir,…Lesa meira

true

Fjórir listar í boði í Borgarbyggð

Á hádegi í dag rann út frestur til að skila inn framboðum til sveitarstjórna. Í Borgarbyggð verða fjórir listar í kjöri. Það staðfestir Sveinbjörn Eyjólfsson formaður yfirkjörstjórnar í samtali við Skessuhorn. Þetta eru: A-listi Samfylkingar og Viðreisnar B-listi Framsóknarflokks D-listi Sjálfstæðisflokks V-listi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs.Lesa meira

true

Kosið verður milli þriggja lista

Þrír framboðslistar voru lagðir fram á Akranesi fyrir lokafrest á hádegi í dag. Það eru: B-listi Framsóknar með frjálsum, D-listi Sjálfstæðisflokks og S-listi Samfylkingar.Lesa meira

true

Kosið verður óhlutbundnum kosningum í Hvalfjarðarsveit

Enginn framboðslisti barst kjörstjórn Hvalfjarðarsveitar fyrir lokafrest á hádegi í dag. Guðmundur Ólafsson formaður kjörstjórnar staðfestir þetta i samtali við Skessuhorn. Því verður kosið samkvæmt persónukjöri 14. maí í vor. Fimm af núverandi sveitarstjórnarmönnum biðjast undan kjöri í persónukosningum, aðrir kjörgengir verða í kjöri, eða um 500 íbúar. Þeir sem biðjast undan endurkjöri sitja allir…Lesa meira

true

Kosið verður persónukjöri í Dalabyggð

Enginn framboðslisti var lagður fram til kjörstjórnar Dalabyggðar þegar framboðsfrestur rann út á hádegi í dag. Einn listi, Framsóknir og frjálsir, hafði verið kynntur til leiks fyrr í vikunni, en hann var ekki lagður fram þegar á reyndi í ljósi þess að aðrir listar voru ekki væntanlegir. Valdís Einarsdóttir, sem sæti á í kjörstjórn, staðfestir…Lesa meira

true

Fundaherferð Öryrkjabandalagsins og Þroskahjálpar um landið

Nú í aðdraganda sveitarstjórnakosninga 14. maí eru Öryrkjabandalag Íslands og Þroskahjálp að ferðast um landið og funda með frambjóðendum og kjósendum. Slíkir fundir hafa m.a. verið haldnir á Akranesi og í Borgarnesi. Næsti fundur verður haldinn í Stykkishólmi mánudaginn 11. apríl, á Hótel Fransiskus. Fundarefnið er staða fatlaðs fólks í sveitarfélögum. Málaflokkur fatlaðs fólks var…Lesa meira

true

Kærir lögreglustjórann á Vesturlandi

Fréttablaðið greinir frá því í dag að Karl Gauti Hjaltason fv. alþingismaður Flokks fólksins og síðar Miðflokksins hafi kært lögreglustjórann á Vesturlandi til ríkissaksóknara fyrir að hætta rannsókn á hendur yfirkjörstjórn á Vesturlandi vegna talningar atkvæða í Borgarnesi að loknum alþingiskosningum 25. september sl. Karl Gauti var einn þeirra frambjóðenda sem náði þingsæti á kosninganótt…Lesa meira

true

Helga Sóley sigurvegari undankeppni SamVest

Þriðjudaginn 29. mars síðastliðinn komu saman um 300 unglingar í Hjálmakletti í Borgarnesi til að skemmta sér saman og hlusta á hæfileikaríka söngvara keppa um tvö sæti í Söngkeppni Samfés. Æskulýðsballi Óðals og undankeppni SamVest var að þessu sinni slegið saman í einn stóran viðburð en ekki hefur verið hægt að halda Æskulýðsballið síðustu tvö…Lesa meira

true

Vilji íbúa til sameiningar verður kannaður

Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur ákveðið að samhliða sveitarstjórnarkosningum í vor skuli fara fram skoðanakönnun meðal íbúa um afstöðu þeirra til sameiningar við önnur sveitarfélög. Málið var fyrst rætt á fundi í janúar og var byggðarráði falið að útfæra íbúakönnun varðandi málið og leggja fyrir sveitarstjórn til umfjöllunar. Þar var málið síðan rætt og tók Róbert Ragnarsson…Lesa meira