Fréttir

true

Vilja að bankapeningar fari til uppbyggingar í samgöngukerfinu

Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar samþykkti á fimmtudaginn ályktun þess efnis að gerð verði sú krafa að hluti þeirra fjármuna sem fengust með nýlegri sölu eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka hf. verði nýttir til uppbyggingar á grunnneti samgöngukerfisins. Í því sambandi er bent á nauðsyn þess að fullfjármagna endurbætur á Skógarstrandarvegi og að ríkið fjárfesti í nýrri og öflugri…Lesa meira

true

Framboðslisti Samfylkingarinnar á Akranesi

Framboðslista Samfylkingarinnar á Akranesi fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 14. maí nk. var kynntur og samþykktur á félagsfundi fyrr í kvöld. „Á framboðslistanum okkar er fjölbreyttur hópur fólks sem býr að alls konar þekkingu og reynslu af lífinu og tilverunni, hópur sem endurspeglar raunverulega breidd samfélagsins. Við erum öll venjulegt fólk um leið og við erum óvenjuleg hvert…Lesa meira

true

Stærsti vinningur í getraunum frá upphafi

Íslenskur tippari vann 104 milljónir króna þegar hann fékk 13 rétta á Enska getraunaseðilinn í gær og er þetta hæsti vinningur sem unnist hefur hjá Íslenskum getraunum frá upphafi. Síðasti leikurinn á getraunaseðlinum var viðureign Man. Utd. og Leicester og áður en sá leikur fór fram var ljóst að tipparinn myndi fá 13 rétta ef…Lesa meira

true

Hurð flutningabíls opnaðist og fiskur fór niður

Borgarnes er ekki þekkt fyrir mikla útgerð né fiskvinnslu, en engu að síður er bæjarfélagið líklega sá staður landsins þar sem mestir fiskflutningar fara í gegn. Í gær varð það óhapp að hurð á flutningabíl opnaðist í beygju á milli N1 og Hyrnutorgs í Borgarnesi með þeim afleiðingum að nokkur fiskkör runnu af bílnum. Sem…Lesa meira

true

Aprílgöbbin tekin alla leið

Á föstudaginn var ýmislegt spennandi og skemmtilegt í boði. Til dæmis var hægt að fara í Safnahúsið í Borgarnesi og hirða þar ýmsa gamla muni sem starfsfólkið vildi gefa. Einnig var hægt að fara á fría hádegistónleika hjá Bubba Mortens í Akranesvitanum, nú eða kynna sér splunkunýtt framboð til bæjarstjórnar á Akranesi. Ekkert af þessu…Lesa meira

true

Sylvía landaði fyrsta Íslandsmeistaratitlinum í Youth-A

Íslandsmeistaramótið í klifri fór í gær fram í Klifurhúsinu í Reykjavík. Keppt var í öllum aldursflokkum en fjórir klifrarar frá ÍA höfðu tryggt sér þátttökurétt eftir undankeppni sem haldin var fyrr í vikunni. Sylvía Þórðardóttir (Youth-A) keppti Í Opnum flokki fullorðinna (Youth A/Junior/Senior) og var í góðri stöðu eftir undankeppnina, þar sem hún toppaði fimm…Lesa meira

true

Mjólkurverð hækkar

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur. Taka breytingarnar gildi í dag, 1. apríl. Lágmarksverð fyrir 1. flokk mjólkur til bænda hækkar um 6,60%, fer úr 104,96 kr./ltr í 111,89 kr./ltr. Frá og með 4. apríl nk. hækkar heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara sem…Lesa meira

true

Styrktarleikur fyrir Þuríði Örnu

Á morgun, laugardaginn 2. apríl, fer fram leikur ÍA og Völsungs í Lengjubikar kvenna í knattspyrnu og hefur verið ákveðið að leikurinn verði styrktarleikur fyrir Þuríði Örnu Óskarsdóttur. Þuríður Arna er frænka Dagbjartar Lífar leikmanns meistaraflokks kvenna og Hanna Þóra mamma Dagbjartar og Óskar Örn pabbi Þuríðar eru systkini. „Þuríður Arna er hugrökk bráðum tvítug…Lesa meira

true

Spánverjar smíða nýtt hafrannsóknaskip

Íslenska ríkið hefur skrifað undir samning um smíði nýs hafrannsóknaskips við spænsku skipasmíðastöðina Astilleros Armón. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra voru viðstödd athöfn þar sem gengið var frá kaupunum. Nýja skipið mun koma í stað rannsóknaskipsins Bjarna Sæmundssonar sem hefur nú þjónað ríkinu við hafrannsóknir í 52 ár. Við hönnun skipsins hefur mikil…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík vann málið gegn Jóni Páli

Knattspyrnuþjálfarinn Jón Páll Pálmason höfðaði mál gegn knattspyrnufélaginu Víkingi Ólafsvík eftir að hafa verið rekinn sem þjálfari liðsins í Lengjudeildinni í júlí árið 2020. Hann vildi meina að uppsögn sín hefði verið ólögmæt, en frá málinu er greint á fotbolti.net. Jón Páll krafðist þess að honum yrðu greiddar tæplega 26 milljónir króna en tapaði málinu…Lesa meira