Mjólkurverð hækkar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur. Taka breytingarnar gildi í dag, 1. apríl. Lágmarksverð fyrir 1. flokk mjólkur til bænda hækkar um 6,60%, fer úr 104,96 kr./ltr í 111,89 kr./ltr. Frá og með 4. apríl nk. hækkar heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara sem nefndin verðleggur almennt um 4,47%.\r\n\r\n„Verðhækkunin er til komin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu og vinnslu mjólkur frá síðustu verðákvörðun 1. desember 2021. Frá síðustu verðákvörðun til marsmánaðar 2022 hafa gjaldaliðir í verðlagsgrundvelli kúabús hækkað um 6,6%, að meðtalinni verðhækkun áburðar sem jafnan er reiknuð í júní. Á sama tímabili hefur vinnslu- og dreifingarkostnaður afurðastöðva hækkað um 2,14% og er það grundvöllur hækkunar heildsöluverðs auk hækkunar á afurðaverði. Verðákvörðun verður tekin til endurskoðunar í maí þegar fyllri skoðun vafaatriðum er tengjast sérstökum stuðningi sem greiddur var til móts við áburðarverðhækkanir liggur fyrir,“ segir í tilkynningu frá Verðlagsnefnd búvara.",
  "innerBlocks": []
}
Mjólkurverð hækkar - Skessuhorn