Jón Páll Pálmason, fyrrum þjálfari Víkings Ó. Ljósm. úr safni

Víkingur Ólafsvík vann málið gegn Jóni Páli

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Knattspyrnuþjálfarinn Jón Páll Pálmason höfðaði mál gegn knattspyrnufélaginu Víkingi Ólafsvík eftir að hafa verið rekinn sem þjálfari liðsins í Lengjudeildinni í júlí árið 2020. Hann vildi meina að uppsögn sín hefði verið ólögmæt, en frá málinu er greint á fotbolti.net.\r\n\r\nJón Páll krafðist þess að honum yrðu greiddar tæplega 26 milljónir króna en tapaði málinu og var dæmdur til að greiða sjálfur eina og hálfa milljón í málskostnað. Í dómnum segir að í fundargerð Víkings hafi komið fram að nokkur óánægja væri með störf Jóns og óánægja hjá foreldrum iðkenda en hann starfaði einnig við yngri flokka félagsins. Þá kemur fram að Jón Páll hafi sent tölvupóst til félagsins 12. júlí 2020 og rakið atriði sem hann væri óánægður með. Degi síðar var hann boðaður á fund og honum tjáð að frekara vinnuframlagi af hans hálfu væri ekki óskað. Honum var jafnframt tjáð að hann fengi greitt þar til uppsagnarákvæði yrði virkt í samningi hans, þann 1. október. Jón Páll vildi ekki una þessum málalokum og sendi kröfubréf þar sem hann fór fram á að félagið greiddi honum það fjártjón sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna ólögmætrar uppsagnar en kröfum hans var hafnað.\r\n\r\nJón Páll fór síðan í mál við Víking og krafðist meðal annars að fá miskabætur vegna skaða á mannorði. Hann sagðist ekki hafa vanefnt skyldur sínar að neinu leyti og ekki fengið hæfilegan frest til úrbóta. „Dómurinn fellst á það með stefnda (Víkingi Ólafsvík) að honum hafi verið heimilt að afþakka frekari vinnuframlag stefnanda á fundi aðila 13. júlí 2020 enda er það réttur vinnuveitenda að afþakka vinnuframlag launþega ef greitt er umsamið endurgjald.“ segir í dómnum.\r\n\r\nÞví er það niðurstaða dómsins að Víkingur Ólafsvík hafi sýnt fram á að samningurinn hafi verið í fullu gildi þar til honum var sagt upp 1. október 2020.",
  "innerBlocks": []
}
Víkingur Ólafsvík vann málið gegn Jóni Páli - Skessuhorn