{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á morgun, laugardaginn 2. apríl, fer fram leikur ÍA og Völsungs í Lengjubikar kvenna í knattspyrnu og hefur verið ákveðið að leikurinn verði styrktarleikur fyrir Þuríði Örnu Óskarsdóttur. Þuríður Arna er frænka Dagbjartar Lífar leikmanns meistaraflokks kvenna og Hanna Þóra mamma Dagbjartar og Óskar Örn pabbi Þuríðar eru systkini.\r\n\r\n„Þuríður Arna er hugrökk bráðum tvítug stelpa sem hefur mátt þola meira en margur annar síðustu 18 árin. Hún hefur barist við heilaæxli frá tveggja ára aldri og virðist ekkert lát á þeirri baráttu. Mikil óvissa og endalaus bið eftir rannsóknum og niðurstöðum hefur einkennt líf hennar og fjölskyldu hennar. Meðfram lífsbaráttu sinni, endalausum krabbameinsmeðferðum, aukaverkunum og læknaheimsóknum þá er Þuríður Arna í framhaldsskóla og stefnir á háskólann en hún útskrifast nú í vor úr fjölbraut. Hún hefur mjög gaman af því að föndra og hefur búið til allskonar flotta hluti. Hún er svo dugleg og metnaðargjörn og hefur föndrið verið hennar leið til að skapa sér vettvang til að vinna og vera virk. Hún er mikill stuðbolti og þegar hún er hress og hefur orku að þá fer ekkert fram hjá henni og litar hún tilveru allra í kringum sig.“\r\n\r\nÍ tilkynningu frá ÍA segir að móðir Þuríðar Örnu hafi deilt færslu fyrir rúmri viku síðan þar sem hún óskaði eftir stuðningi við að fjármagna útskriftarferð fyrir Þuríði Örnu til London að sjá Harry Potter safnið, Mamma mía söngleikinn og margt fleira. „Við viljum gera þessa ferð ógleymanlega fyrir Þuríði Örnu og hennar fólk og viljum styrkja hana og hennar fjölskyldu í þessari erfiðu baráttu sem framundan er.“\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-52371\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/04/Styrktarleikur-fyrir-THuridi-Ornu_2-600x800.jpg\" alt=\"\" />",
"innerBlocks": []
}