Fréttir

true

Matthías Leó þriðji á Íslandsmótinu í keilu

Síðasta sunnudag lauk keppni á Íslandsmóti einstaklinga 2022 með forgjöf í keilu. Dagurinn hófst á því að undanúrslit sex efstu úr hvorum flokki voru leikin en spilað var í svokölluðu Round Robin, þ.e. allir við alla. Eftir það fóru þrjú efstu úr hvorum flokki í úrslitaviðureignirnar, spilaður var einn leikur og féll sá sem var…Lesa meira

true

Vegvísir fyrir ungt fólk í viðkvæmri stöðu

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur veitt Vinnumálastofnun 25 milljóna króna styrk vegna tilraunaverkefnisins „Vegvísir“ sem ætlað er að bæta þjónustu við ungt fólk í viðkvæmri stöðu, þ.e. einstaklinga á aldrinum 16-29 ára sem eru ekki í námi, þjálfun eða starfi (NEET). Markmiðið með verkefninu er að sporna við ótímabæru brotthvarfi ungs fólks af…Lesa meira

true

Mottumars er genginn í garð

Mottumars, árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá körlum hófst í dag, 1. mars. Í Mottumars er tekið höndum saman í vitundarvakningu um krabbamein hjá körlum og öflum fjár fyrir mikilvægri starfsemi Krabbameinsfélagsins. Í ár eru karlmenn minntir sérstaklega á að kynna sér hvaða einkenni geta bent til krabbameins og þeir hvattir…Lesa meira

true

Styrkja nú hjálpartækjakaup

Sjúkratryggingar Íslands greiða nú styrki vegna tiltekinna hjálpartækja til íbúa hjúkrunarheimila sem áður hefur verið á hendi hjúkrunarheimilanna sjálfra að útvega og greiða fyrir. Þetta á t.d. við um tiltekin hjálpartæki vegna öndunarmeðferðar og blóðrásarmeðferðar, stoðtæki, stómahjálpartæki, göngugrindur, hjólastóla og fylgihluti með þeim og tölvur til sérhæfðra tjáskipta. Heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerðir þessa efnis með…Lesa meira

true

Sjálfstæðismenn velja framboðslista sinn fyrir bæjarstjórnarkosningarnar

Fyrsti framboðslistinn sem lítur dagsins ljós á Vesturlandi Líf Lárusdóttir er nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akranesi, eftir að tillaga uppstillingarnefndar til framboðslista flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 14. maí var samþykkt einróma á fundi Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akranesi í gærkvöldi. Sjálfstæðisflokkurinn á nú fjóra fulltrúa í bæjarstjórn. Þrír af þeim gefa ekki kost á sér í baráttusæti.…Lesa meira

true

Seldi bátinn en rær áfram í umboði Eskju

Eiður Ólafsson útgerðarmaður á Akranesi seldi í ágúst á liðnu ári bát sinn, Ísak AK. Kaupandinn var Eskja ehf á Eskifirði sem átti ónotaðar veiðiheimildir í bolfiski. Eiður hefur því gert áfram út bátinn í umboði Eskju. Í viðtali við Aflafréttir segir Eiður að ástæður sölunnar hafi annars vegar verið litlar aflaheimildir sem hann átti,…Lesa meira

true

Þór kom til hafnar í Grundarfirði

Varðskipið Þór kom til Grundarfjarðar laugardaginn 26. febrúar þar sem að það vantaði í áhöfn skipsins. Einhverjir úr áhöfninni höfðu veikst af Covid-19 veirunni og því var engin áhætta tekin og skipt um einhverja áhafnarmeðlimi. Skipið stoppaði stutt við en það lagðist að bryggju rétt fyrir klukkan ellefu og lét úr höfn um nónbil.Lesa meira

true

Gestirnir úr Vopna báru sigur úr býtum á Vesturlandsmótinu

Vesturlandsmótið í sveitakeppni í bridds fór fram á laugardaginn. Spilað var á Akranesi og tóku sex sveitir þátt. Gestrisnin var mikil á mótinu, því sveit Vopna bar sigur úr býtum með fáheyrðum yfirburðum, eða 87,6 stigum. Sveitina skipuðu þeir Matthías Imsland, Ómar Olgeirsson, Stefán Jónsson, Ísak Örn Sigurðsson og Gunnar B Helgason. Sveit Guðmundar Ólafssonar…Lesa meira

true

Rebekka Rán er Íþróttamaður Snæfells 2021

Körfuknattleikskonan Rebekka Rán Karlsdóttir hefur verið valin Íþróttamaður Snæfells fyrir árið 2021. Þetta var tilkynnt á sunnudaginn í hálfleik Snæfells og Ármanns í 2. deild karla. Rebekka Rán er fyrirliði Snæfells sem leikur í 1. deild kvenna og er ein af máttarstólpum liðsins. Hún er fyrirmynd innan vallar sem utan, frábær liðsmaður og enn betri…Lesa meira

true

Miðbæjarsamtökin stilla saman strengi

Í gær hittust til skrafs og ráðagerða stofnfélagar í Miðbæjarsamtökunum Akratorgi á Akranesi, þeir sem áttu heimagengt. „Mikil stemning er í þessum hóp til að gera eitthvað skemmtilegt til að auka lífið í miðbænum. En eitt að því sem búið er að gera er að taka viðtal við arkitektinn að Landsbankahúsinu en samtökunum er mikið…Lesa meira