
Í rokinu í gærkvöldi losnaði og fauk þakdúkur af húsi Héraðsskólans í Reykholti, af þeim hluta sem nú hýsir varaeintakasafn Landsbókasafns Íslands. Að sögn heimamanna er ekki talin hætta á að regnvatn komist inn í húsið, en undir dúknum er timbur og steypt þakplata. Gengið verður í lagfæringar þegar veður gengur niður.Lesa meira








