Fréttir

true

Sameining felld

Kjörstjórn vegna sameiningar Snæfellsbæjar og Eyja- og Miklaholtshrepps hefur birt niðurstöðu úr kosningunum sem fram fóru í dag. Niðurstaðan var sú að sameining var naumlega samþykkt í Snæfellsbæ en kolfelld í Eyja- og Miklaholtshreppi. Því verður ekki af sameiningu þessara tveggja sveitarfélaga. Í Eyja- og Miklaholtshreppi var kjörsókn 74,6%. Alls greiddu 62 atkvæði, en 83…Lesa meira

true

Þriggja bíla árekstur við Rif

Á tólfta tímanum í dag varð þriggja bíla árekstur við afleggjarann að Rifi á Snæfellsnesi. Tölvuverðar skemmdir urðu á tveimur bílum. Ekki er vitað um slys á fólki á þessari stundu. Skafrenningur er á svæðinu og lítið skyggni.Lesa meira

true

Lítið eitt minni loðnukvóti en upphaflega var gefinn út

Hafrannsóknastofnun leggur til að loðnuafli á vertíðinni verði ekki meiri en 869.600 tonn. Það þýðir 34.600 tonna lækkun ráðgjafar frá þeirri sem gefin var út 1. október 2021. Ráðgjöfin byggir á samteknum niðurstöðum á mælingum á stærð veiðistofns í haustleiðangri og leiðöngrum sem fóru fram frá 19. janúar til 14. febrúar. Útgerðarfyrirtækin og aðrir hagsmunaaðilar…Lesa meira

true

Samþykkja hönnunarsamkeppni allt að þrjú þúsund manna íbúðabyggðar handan Borgarvogs

Á vinnufundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar með starfsmönnum skipulags- og byggingardeildar nýlega komu fram áhugaverðar hugmyndir um staðsetningu nýrrar íbúðarbyggðar í Borgarnesi. Sömuleiðis var rætt hvernig best yrði staðið að framgangi hugmyndavinnu vegna slíks svæðis. Á fundi byggðarráðs í gær var málið tekið upp og sveitarstjóra falið að leita til Arkitektafélags Íslands og undirbúa samkeppni um heildarskipulagningu…Lesa meira

true

546 nú með veiruna á Vesturlandi

Samkvæmt nýrri samantekt Lögreglunnar á Vesturlandi eru nú 546 manns í einangrun með Covid-19 í landshlutanum. Það jafngildir að um 3,4% íbúa séu veikir. Eftir að sóttvarnaráðstöfunum var breytt má segja að veiran leiki lausum hala. Þannig eru bæði nemendur og starfsfólk fjölmargra skólastofnana veikir, auk annarra. Flestir eru veikir á Akranesi, þar sem 341…Lesa meira

true

Gul viðvörun annað kvöld

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir Faxaflóasvæðið vegna austan hvassviðris síðdegis á morgun, laugardag og til hádegis á sunnudaginn. Það verður austan 15-23 m/s og skafrenningur á svæðinu. Lélegt skyggni og slæm akstursskilyrði og því má búast við samgöngutruflunum.Lesa meira

true

Skallagrímsleik frestað

Þremur leikjum í 1. deild karla og kvenna í körfuknattleik hefur verið frestað vegna Covid-19 smit. Þar á meðal er leik karlaliðs Hamars og Skallagríms sem var á dagskrá í kvöld. Honum var frestað vegna smita hjá Skallagrími. Þá var leik Sindra og Hrunamanna, sem var á dagskrá í 1. deild karla í kvöld, einnig…Lesa meira

true

Pokar að láni í Hyrnutorgi í Borgarnesi

Fyrir nokkrum árum fór í gang verkefnið Egla tekur til hendinni. Um er að ræða átak til að vekja athygli á skaðsemi plasts fyrir lífríkið og hvetja einstaklinga og fyrirtæki til að draga úr notkun á einnota plasti. Í samstarfi við Ölduna í Borgarnesi sem er vinnustaður fyrir fólk með skerta starfsgetu voru saumaðir fjölnota…Lesa meira

true

Miðstjórn ASÍ fer fram á rannsókn á ríkisstuðningi við fyrirtæki

Miðstjórn Alþýðusamband Íslands krefst þess að fram fari rannsókn á meðferð opinberra fjármuna í tengslum við stuðningsúrræði til fyrirtækja vegna efnahagslegra áhrifa COVID- faraldursins. Þetta kemur fram í pistli á vefsíðu Alþýðusambandsins en þar segir að þegar ríkishirslurnar voru opnaðar til að veita fyrirtækjum ríkisstuðning af óþekktri stærð hafi Alþýðusambandið strax farið fram á að…Lesa meira

true

Listería í reyktum laxi og reyktum regnboga

Listeria hefur greinst í sýnum af reyktum laxi og reyktum regnboga sem framleiddur var undir nafni Ísfirðings. Dreifing og sala afurðanna hefur verið stöðvuð. Reykti laxinn ætti því ekki að vera í dreifingu í verslunum en neytendur gætu átt vöruna í frysti eða kæli.  Vörurnar hafa verið til sölu í Nettó, Kjörbúðinni, Krambúðinni, Iceland, Melabúðinni,…Lesa meira