Sameining felld

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Kjörstjórn vegna sameiningar Snæfellsbæjar og Eyja- og Miklaholtshrepps hefur birt niðurstöðu úr kosningunum sem fram fóru í dag. Niðurstaðan var sú að sameining var naumlega samþykkt í Snæfellsbæ en kolfelld í Eyja- og Miklaholtshreppi. Því verður ekki af sameiningu þessara tveggja sveitarfélaga.\r\n\r\nÍ Eyja- og Miklaholtshreppi var kjörsókn 74,6%. Alls greiddu 62 atkvæði, en 83 voru á kjörskrá. Já sögðu 20, Nei sögðu 41 og einn kjörseðill var ógildur.\r\n\r\nÍ Snæfellsbæ var kjörsókn 35%. Alls greiddu 412 atkvæði, en 1.174 voru á kjörskrá. Já sögðu 207, Nei sögðu 201 og auðir seðlar voru fjórir.",
  "innerBlocks": []
}
Sameining felld - Skessuhorn