Fréttir

true

Tíu manna samkomutakmarkanir og skemmtistöðum lokað

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að herða sóttvarnaaðgerðir frá og með miðnætti í kvöld. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir að sóttvarnalæknir hafi lagt fram þrjár leiðir, sem ríkisstjórnin hafi metið: Í fyrsta lagi óbreyttar aðgerðir, í öðru lagi að færa samkomutakmarkanir úr tuttugu manns í tíu, eða sem þriðja kost að loka samfélaginu í tíu daga. Ríkisstjórnin…Lesa meira

true

Fækkar um 22 í einangrun á Vesturlandi

Nú eru 167 í einangrun á Vesturlandi, 22 færri en í gær. Heldur hefur fjölgað í sóttkví milli daga, eru nú 213, en voru 186 í gær. Í Borgarbyggð eru nú 68 í einangrun og jafn margir í sóttkví. Á Akranesi eru 57 í einangrun og 90 í sóttkví; í Ólafsvík eru 17 í einangrun…Lesa meira

true

Aðgerðir til að bæta stöðu Landspítalans

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að tryggja Landspítalanum svigrúm sem gerir kleift að greiða starfsfólki sérstaklega fyrir viðbótarvinnuframlag næstu fjórar vikurnar. Talið er að þannig megi betur tryggja mönnun við erfiðar aðstæður meðan mesti þunginn í faraldrinum gengur yfir. „Við þurfum að gera ráð fyrir að næstu vikur verði krefjandi og ástandið er mjög þungt á Landspítala.…Lesa meira

true

Kristín íþróttamaður Borgarfjarðar árið 2021

Í gær var birt myndband á facebook síðu Ungmennasambands Borgarfjarðar þar sem tilkynnt var um fimm efstu íþróttamennina í kjöri Íþróttamanns Borgarfjarðar. Kristín Þórhallsdóttir hefur verið valin íþróttamaður Borgarfjarðar fyrir árið 2021 en hún var á dögunum einnig valin Íþróttamaður Akraness. Þetta er í fyrsta skipti sem sami einstaklingur ber sigur úr býtum í tveimur…Lesa meira

true

Helgi Seljan í starf rannsóknarritstjóra Stundarinnar

Fréttamaðurinn og rannsóknarblaðamaðurinn Helgi Seljan hefur gengið til liðs við Stundina og látið af störfum hjá Ríkissjónvarpinu. Helgi hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín hérlendis og erlendis, meðal annars þrenn blaðamannaverðlaun Íslands og níu tilnefningar til sömu verðlauna. Feril sinn í fjölmiðlum hóf Helgi á héraðsfréttablaðinu Austurglugganum árið 2002 en fór þaðan á DV,…Lesa meira

true

Íslenska landsliðið hefur keppni í kvöld

Íslenska landsliðið í handbolta mun hefja keppni á Evrópumótinu í kvöld þegar liðið mætir Portúgal í B-riðli. Mótið er haldið í Ungverjalandi og Slóvakíu og spilar Ísland sinn fyrsta leik í höll í Búdapest og hefst leikurinn kl. 19:30. Ísland er í riðli með Portúgal, Hollandi og Ungverjalandi og mæta strákarnir Hollendingum á sunnudaginn kl.…Lesa meira

true

Brimir BJJ opnað á nýjum stað á morgun

Brimir BJJ verður opnað á nýjum stað við Smiðjuvelli 17 á Akranesi á morgun. Valentin Fels Camilleri opnaði Brimir BJJ á Akranesi í ágúst 2020 og kennir þar bardagaíþróttina brasilískt jiu-jitsu. Í tilefni opnunarinnar mun bardagaíþróttamaðurinn Gunnar Nelson heimsækja stöðina og vera með sýnikennslu ásamt Vilhjálmi Arnarssyni og Valentin. Húsið verður opnað kl. 9:45 og…Lesa meira

true

Staða ferðaþjónustunnar í kjölfar kóvid – umtalsverðar skammtímaskuldir safnast upp

KPMG hefur fyrir Ferðamálastofu unnið ítarlega greiningu á fjárhagsstöðu ferðaþjónustunnar og eru niðurstöður hennar aðgengilegar í skýrslu sem gefin hefur verið út. Byggir hún á ársreikningum ferðaþjónustufyrirtækja fyrir árið 2020, utan flugs og flugtengdrar starfsemi. Þá er sótt í margvíslegar aðrar upplýsingar um rekstur og efnahag greinarinnar. Skýrslan kemur í kjölfar tveggja fyrri skýrslna sem…Lesa meira

true

Tíu prósenta aukning löndunar í Snæfellsbæ

Afli báta frá Snæfellsbæ var mjög góður árið 2021, eða samtals 35.539 tonn, en árið 2020 var landaður afli 32.304 tonn. Þetta er því 10% aukning milli ára. Allar þessar tölur miðast við óslægðan afla. Hafnir Snæfellsbæjar eru þrjár og var landað 1.647 tonnum á Arnarstapa árið 2021 á móti 1.784 tonnum árið 2020. Í…Lesa meira

true

Listamenn kaupa Blómsturvelli og koma sér þar fyrir

Listamennirnir Bjarni Sigurbjörnsson og eiginkona hans Ragnheiður Guðmundsdóttir hafa keypt húsnæði verslunar Blómsturvalla á Hellissandi. Verslunarrekstri var hætt í húsinu fyrir þremur árum. Bjarni segir í samtali við Skessuhorn að hann og kona hans komi til með að búa í húsinu ásamt því að verða þar með vinnustofur, sýningarsal á þeirra verkum og halda myndlistarnámskeið…Lesa meira