Svipmynd frá Rifshöfn en aflaaukning þar var 6.300 tonn milli ára. Ljósm. af

Tíu prósenta aukning löndunar í Snæfellsbæ

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Afli báta frá Snæfellsbæ var mjög góður árið 2021, eða samtals 35.539 tonn, en árið 2020 var landaður afli 32.304 tonn. Þetta er því 10% aukning milli ára. Allar þessar tölur miðast við óslægðan afla. Hafnir Snæfellsbæjar eru þrjár og var landað 1.647 tonnum á Arnarstapa árið 2021 á móti 1.784 tonnum árið 2020. Í Rifi var landað 21.882 tonnum árið 2021 á móti 15.581 tonni árið 2020. Í Ólafsvík var landað 12.008 tonnum árið 2021 á móti 15.011 tonnum árið 2020.\r\n\r\nRifshöfn er þriðja hæsta löndunarhöfn landsins í þorski en Grindavík er í efsta sætinu og svo Siglufjörður í því þriðja. Bátar frá Snæfellsnesi lönduðu á síðasta ári miklu á Siglufirði og var aflinn fluttur að stórum hluta til vinnslu í Rifi.",
  "innerBlocks": []
}
Tíu prósenta aukning löndunar í Snæfellsbæ - Skessuhorn