Staða ferðaþjónustunnar í kjölfar kóvid – umtalsverðar skammtímaskuldir safnast upp
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "KPMG hefur fyrir Ferðamálastofu unnið ítarlega greiningu á fjárhagsstöðu ferðaþjónustunnar og eru niðurstöður hennar aðgengilegar í skýrslu sem gefin hefur verið út. Byggir hún á ársreikningum ferðaþjónustufyrirtækja fyrir árið 2020, utan flugs og flugtengdrar starfsemi. Þá er sótt í margvíslegar aðrar upplýsingar um rekstur og efnahag greinarinnar. Skýrslan kemur í kjölfar tveggja fyrri skýrslna sem gerðar voru árið 2020 þar sem notast var við ársreikninga 2018 og 2019.\r\n\r\nSkýrslan ætti að gefa góða mynd af rekstri ferðaþjónustufyrirtækja í því árferði sem ríkt hefur vegna Covid faraldursins. Skýrslan var kynnt á opnum veffundi Ferðamálastofu og KPMG í síðustu viku. Helstu niðurstöður skýrslunnar um rekstrarárið 2020 eru:\r\n
\r\n \t
Mikill samdráttur varð á öllum sviðum ferðaþjónustunnar.
\r\n \t
Umtalsverðar skammtímaskuldir hafa safnast upp hjá ferðaþjónustufyrirtækjum.
\r\n \t
Til að bregðast við þessari stöðu munu ferðaþjónustufyrirtæki áfram þurfa að leita leiða til að hagræða í rekstri og auka framlegð. Eins verður þörf á endurskipulagningu fyrirtækja og samþjöppun í greininni á næstu misserum.
\r\n
\r\nSkýrslan leitast við að varpa ljósi á rekstur ársins 2021 og eru helstu atriði þar um þessi:\r\n
\r\n \t
Eftir heldur dræma mánuði fyrri hluta árs 2021 tók við fjölgun ferðamanna á þriðja ársfjórðungi og október var nokkuð góður.
\r\n \t
Meðaldvalarlengd jókst milli ára og var að jafnaði tæplega fimmtungi lengri árið 2021 en árið 2019. Kortavelta jókst einnig nokkuð milli þessara ára. Vísbendingar eru um að samsetning útgjalda ferðamanna sé að breytast þó meðaleyðsla á dag standi nokkurn veginn í stað.
\r\n \t
Eiginfjárhlutfall lækkar úr 19% í árslok 2020 í 12% í árslok 2021.
\r\n
"innerBlocks": []
Staða ferðaþjónustunnar í kjölfar kóvid - umtalsverðar skammtímaskuldir safnast upp - Skessuhorn